Regn og þungbúinn himinn getur magnað í okkur drungalega hlið. Hún er hins vegar líka tákn um betri tíð, hreinsun og rigning getur líka verið rómantísk. Ein fegurstu atriði kvikmyndasögunnar eiga sér stað í úrhellisrigningu, eins og einum frægustu ástarmyndum allra tíma: In the Mood for Love og Breakfast at Tiffany´s þar sem rigningin er látin tákna ólgu sálar. Nei, það er engin ástæða til þess að láta rigninguna draga sig niður. Margar konur eiga hins vegar ekki almennileg föt sem þola þetta endalausa rigningaveður á Íslandi. En þá er bara að bæta úr. Lítið á það hvernig klæða má af sér drungann í úrhellinu.
Óvenjuleg
Þessi lífga upp á grámyglulega daga. Regnstígvél frá Soniu Rykiel. Fást í dökkbláu, svörtu og rauðu í KronKron.
Rómantísk
Falleg regnflík frá Farmers Market. Formfögur og dramatísk svo hún dugar bæði hversdags og við fínni tækifæri.
Kvenleg
Falleg úlpa frá haust og vetrarlínu Peter Jensen. Draumaflíkin í vetur. Mjög í anda Maggie Chung í kvikmyndinni In the Mood for Love. Athugið vel hanskana og beltið. Gera gæfumuninn. Ef til vill má finna svipaða flík á mörkuðum með notaðar flíkur.
Litrík
Peter Jensen lét karlmódel einnig í kvenflíkur á sýningu sinni. Þessi úlpa er úr sömu línu og þessi fyrir ofan. Jafnskrautleg og falleg. Hún fæst í KronKron og er afar klæðileg, hlý og góð.
Gamalt tvist
Þessi flík er frá Aquascutum í London og er skemmtilegt tilbrigði við tweedkápuna eins og þá sem Audrey Hepburn klæðist í Breakfast at Tiffanys. Aquascutum er enda það fyrirtæki sem einna fyrst hóf framleiðslu á slíkum regnkápum fyrir karla og konur og hefur gert æ síðan.
Klassík
Regnkápa frá Topshop sem vonandi má sjá í búðum hér á landi fljótlega. Klassískt snið sem minnir á veiðijakkana frá Barbour.
Gróft á móti fínu
Grófir og góðir skór frá TopShop fyrir veturinn. Fallegir með fínlegri flíkum.



April 20th, 2010 → 10:57 am @ kristjana
0