Karin Kristjana Hindborg hjá MAC sýnir okkur förðun fyrir útiveislur sumarsins. Slík förðun getur verið vandasöm. Hún þarf að endast vel og í útiveislum er skemmtilegast að hafa sem minnstar áhyggjur af farðanum. Maskarataumar og eldrautt nef, tárvot augu og varaliturinn út um allt? Hjá öllu þessu má komast. Karin sýnir okkur því helstu brellurnar sem felast meðal annars í fallegri áferð, raka og endingargóðum varalit. Karin heldur einnig úti vefsíðunni Lipstick.is þar sem hún gefur lesendum haldgóð ráð um förðun og óhætt er að mæla með.
Frábær förðun fyrir sumargrillpartýið! frá Kristjönu Guðbrandsdóttur af Vimeo.



April 23rd, 2010 → 9:24 am @ kristjana
0