Sophia Loren er miklu meira en elskuð og dáð kvikmyndastjarna. Hún er kokkur og eldar af mikilli ástríðu. Hún elskar ítalskan mat og árið 2004 gaf hún út matreiðslubókina Recipes & Memories sem allir unnendur ítalskrar fæðu ættu að reyna að komast yfir.
Ástríður Sophiu: Í bókinni eru yfir 100 uppskriftirnar sem eru margar hverjar ákaflega skemmtilegar. Sérstaklega er gaman að lesa um einn uppáhaldsrétt hennar sem er einfaldur pastaréttur þar sem brauðmolar eru notaðir í stað kjöts eða grænmetis. Réttinn segir hún ef til vill svokallað fátækrafæði en svo sannarlega ljúffengan.
Bókina er ekki síður gaman að skoða vegna myndanna og tengingu Loren við minningar sínar og æskuslóðir. Hana má fá á Amazon vefversluninni. Hér að neðan er uppskrift að Tiramisu úr bók Sophiu Loren. Tiramisu segir Sophia hafa verið stefnumótafæði níunda áratugarins.
Tiramisu f. 8 manns:
• Egg, 3 hvítan og rauðan skilin að.
• Sykur, 5 msk
• Mascarpone ostur, 200 grömm
• Ladyfingers, 1 stór pakki (36 fingur)
• Appelsínulíkjör, 1 bolli
• Espressokaffi, 1 bolli
• Dökkt ósætt súkkulaði, rifið 1/2 bolli
• Ósætt, dökkt kakó- 1/2 bolli
Aðferð:
1. Blandið saman eggjarauðum og sykri í skál og þeytið vel saman.
2. Þeytið eggjahvítur í annarri skál þar til þær mynda toppa.
3. Blandið eggjarauðum og mascarpone osti saman í þriðju skálinni. Blandið varlega saman stífþeyttum eggjahvítum.
4. Leggið ladyfingers í ca 12 tommu fat.
5. Vætið þá með helmingnum af líkjörnum og helmingjum af kaffinu.
6. Leggið mascarpone blönduna yfir fingurnar, rifið súkkulaðið og sáldrið rúmlega helmingnum af kakóduftinu yfir.
7. Setjið annað lag af ladyfingers yfir þetta og vætið með því sem eftir er af líkjör og kaffi.
8. Setjið fatið í kæli í að minnsta kosti 12 klukkutíma.
9. Sáldrið kakódufti yfir rétt áður en Tiramisu er borið fram.




April 12th, 2010 → 2:36 pm @ arna
0