Spennandi Stokkhólmur

April 16th, 20101:39 pm @ arna

0


Spennandi Stokkhólmur

Það er ekki að ástæðulausu sem stórborgin Stokkhólmur er stundum nefnd Feneyjar norðursins. Miðhluti Stokkhólmar  er byggður á fjórtán eyjum og ströndum skerjagarðarins og 53 brýr tengja eyjarnar. Eyjarnar og vatnið gefa Stokkhólmi heillandi karakter.

Gamli miðbærinn, Gamla Stan, er hjarta Stokkhólms. Í  þessum hluta borgarinnar ríkir einstakt andrúmsloft sem minnir á gamla tíma og það að Svíþjóð er eitt af konungsveldum Evrópu.  Þar er enn að finna fagrar byggingar frá 13.öld, þrönga hlaðna göngustíga og hlýlegt andrúmsloft.  Í Gamla Stan er margt að sjá, Stokkhólmskirkjuna sem er byggð árið 1279, konungshöllina sem er í barokkstíl, leikfangasafn með gömlum leikföngum frá gömlum tímum og Vasa safnið sem geymir skip frá 17.öld. Skipið er það eina í veröldinni sem hefur verið varðveitt í heilu lagi frá þessum tíma og er ansi mögnuð sjón. 
Eyjan Södermalm, oftast nefnt Söder, er nálægt Gamla Stan.  Þangað flykkjast listamenn, bóhemar og innflytjendur og þar er menningarlíf í miklum blóma.  Í Södermalm má finna margar litlar áhugaverðar búðir og bari sem trendsettarar og bóhemar sækja gjarnan, þá sérstaklega í skemmtilegum hluta Söder sem kallað er SoFo (suður af Folkungagatan). 
Á Östermalm býr síðan ríka og fræga fólkið. Þar er til að mynda Strandvagen sem er dýrasta gata borgarinnar. Í hverfinu  er mikið af sérverslunum sem selja háklassa húsgögn og sælkeravörur og þar má einnig finna fínustu veitingastaði borgarinnar.

Hvar er hægt að versla?

Í Stokkhólmi má finna, eins og í öllum helstu borgum Evrópu, hefðbundið úrval verslana og verslunarmiðstöðva. Í borginni eru þó skemmtilegar áherslur á hönnun í úrvali lítilla en afar vandaðra sérverslana. Svíar eru enda stoltir af því að leggja mikla rækt við nýsköpun á sviði hönnunar og tísku.
Til að gera góð kaup er vert að líta í vöruhúsin NK, Gallerian og H&M. Á Drottninggatan eru einnig margar góðar verslanir. Götgatan er þekkt fyrir áhugaverðar búðum með einstakri hönnun  og í  Grev Turegatan eru minni búðir með fræg merki og þar eru tvær stórar Filippu K verslanir, ein fyrir konur og önnur fyrir karla.
Í City við Östermalm og þá sérstaklega á svæðinu sem myndar þríhyrning, Stureplan, Norramalmstorg og Östermalmstorg má finna helstu sérversanir Stokkhólms. Á Jacobsberggatan er stór Fornarina búð og á Birgar Jarlsgatan er stórgóð Gucci verslun.

So-Fo hverfið

Í SoFo er eru ótal hönnunar og tískuverslanir. Á Götgatsbacken (rétt við Slussen sem er tengir Söder við Gamla Stan)  má finna Bruno. Bruno er nokkurs konar mini-kringla þar sem finna má verslanir eins og American Apparel, Fornarina, Whyred, David Design og fleiri. Lítið á heimasíðu Bruno:  Bruno.
Í SoFo er líka verslunin Badlands sem kvikmyndaáhugafólk má ekki láta fram hjá sér fara því í henni geta safnarar grafið upp annars ófáanlegar perlur kvikmyndasögunnar.  Rokkarar verða að líta í plötubúðina Pet Sounds Records  sem er sú allra besta í Svíþjóð. Eigendur plötubúðarinnar reka líka bar á svæðinu sem tónlistarmenn flykkjast á.   Ef þú ert heit fyrir Kitschi þá skaltu leita uppi búðirnar Coctail og Coctail Deluxe í SoFo. Búðirnar eru nálægt hver annarri, önnur á Bondegatan og hin á Skånegatan. Í þessum búðum er úrvalið af kitschi hreint ótrúlegt en í búðunum má líka finna skemmtilega retró hluti og húsgögn. Lítið á úrvalið á heimasíðu þeirra: Kitsch og retró í Coctail.
Á Nytorgsgatan eru svo tvær búðir sem óhætt er að mæla með, Neu og Le Shop sem selja heitustu merkin.

Vasastan

Í Vasastan má svo finna frábærar verslanir sem selja notuð föt og húsgögn. Flestar verslananna eru á Odengatan við St.Eriksplan en líka á Upplandsgatan og Roslagsgatan.  Sú allra besta er Myrorna sem er á Tomtebogatan. Þar má minna mikið úrval af fötum, skóm, fylgihlutum,bókum og ýmiskonar heimilisvarningi.  Verðin eru fremur lág svo þarna er hægt að gera góð kaup. Við hlið Myrorna er verslunin People Like Us, dýrari verslun sem geymir skemmtilegt úrval af vönduðum, notuðum fatnaði. Í Vasastan má einnig finna góða Acne verslun, Carin Wester, Kamari og verslunina Old Touch  þar sem má finna gamlar gersemar frá átjándu öld.

Ódýrt tapas og kaffi í brúsa

Fyrir þá sem eru að spara (hver er ekki að því?) má svo sannarlega mæla með vinsælasta tapasveitingastað í Stokkhólmi, Mamas&Tapas. Allir réttir eru á 43 sænskar krónur (um 780 kr.) og þeir eru vel útilátnir.  Matargestir eru saddir og sælir eftir þrjá til fjóra rétti.  Staðurinn opnar klukkan fimm virka daga en tvö um helgar og er opinn framyfir miðnætti.  Tékkið á matseðlinum á heimasíðu þeirra: Mamas&Tapas
Farir þú á Nytorgsgatan að versla ( til dæmis í Le Shop og Neu) þá skaltu endilega fá þér kaffisopa á kaffihúsinu String. Þar safnast listaelítan gjarnan saman, kaffið er fært til þín í málmbrúsa og öll húsgögn staðarins sem eru í retróstíl eru til sölu þannig að ég þér líka við stólinn sem þú situr geturðu einfaldlega kippt honum með þér fyrir lítinn pening. Lítið á heimasíðuna: http://www.cafestring.com/