Snærós Sindradóttir

April 15th, 20109:03 pm @ kristjana

0


Snærós Sindradóttir

Sjálfstætt fólk og Votlendi (klámrit eða kvenfrelsi?)

“Val mitt á uppáhaldsbók er kannski ekki ýkja frumlegt en ætli það sanni ekki bara gæði bókarinnar,” segir Snærós Sindradóttir beðin um að segja frá sinni uppáhalds bók.  ”Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness er sú bók sem breytti lífi mínu hvað mest, á meðan ég las hana komst fátt annað að í höfðinu á mér og hún hefur hjálpað mér mikið við að skilja fólkið í kringum mig. Barátta Bjarts í Sumarhúsum er svo lýsandi fyrir fólk, hvort sem er einstaklinga eða þjóðina í heild sinni. Hún kenndi mér líka um nýja fleti á sjálfri mér og ég sá mikið af mér í Bjarti, ég á álíka erfitt og hann með að biðja fólk um aðstoð. Sjálfstæðið ofar öllu, ef þið skiljið hvað ég á við…”

“Þá er ég hrifin af þeirri bók sem ég las síðast: Votlendi er nýútkomin bók eftir Charlotte Roche og í raun mjög merkileg lesning. Ég veit í raun ekki hvort um er að ræða argasta klámrit eða ótrúlega mikilvægan lið í kvenfrelsisbaráttunni. Stúlkan sem bókin segir frá tekst á ótrúlegan hátt að afmá alla Madonnu ímynd af konum sem þessar hreinu, háttvísu og stilltu stúlkur. Það út af fyrir sig er þrekvirki höfundar og kemur manni í skilning um það hversu þykkt glerþakið er. Ég sem sjálf er kona og feministi varð ögrað við lesningu bókarinnar og oft á tíðum mjög blöskrað. Samt geta svipaðar umræður farið fram um karlmenn án þess að maður blikni.Þó bókin sé kannski ekki mín allra uppáhalds þá situr hún svo sannarlega eftir.”