Sálartónlistina má rekja til gospeltónlistar í Bandaríkjunum. Hjarta hennar er í Chicago og Detroit. Hún miðlar lífsreynslu og tilfinningum svartra og var einna vinsælust á sjötta áratugnum. Við þekkjum allar dívurnar, Dionne Warwick, Roberta Flack, Arethu Franklin og Shirley Bassey. En hér teljum við upp nokkrar magnaðar sálarsystur sem eru ekki eins þekktar en gáfu allt sitt í tónlistina og sungu af krafti um æðri mátt, sársauka og auðvitað ástina!
Marva Whitney
Marva Whitney hóf feril sinn aðeins þriggja ára. Þá söng hún með gospelsönghóp fjölskyldu sinnar, The Manning Gospel Singers. Um tvítugt söng Marva með James Brown og varð fræg fyrir lög eins og “I’m Tired, I’m Tired, I’m Tired (Things Better Change Before Its Too Late)” og “If You Don’t Work (You Can’t Eat).” Hennar útgáfa af laginu: ”It’s My Thing (You Can’t Tell Me Who to Sock It To)” skreið hátt á vinsældarlista. Lag hennar Unwind Yourself hefur verið hljóðblandað af fjölmörgum tónlistarmönnum í seinni tíð. Til að mynda DJ KOOL í lagi sem allir kannast við ” Let Me Clear My Throat”.
Marlena Shaw
Þegar Marlena var aðeins 10 ára fór frændi hennar með hana á svið Apollo Theater í Harlem til að syngja með honum og hljómsveit hans. Áhorfendur voru heillaðir. Móðir Marlenu fannst hún alltof ung til að ferðast með frænda sínum og syngja og skráði hana í tónlistarnám í New York. Seinna hætti hún námi, giftist og eignaðist fmm börn. Hún sinnti tónlistarferlinum meðfram barnauppeldinu og tókst vel til. Hún er fyrsti kvenkyns tónlistarmaðurinn sem útgáfufyrirtækið Blue Notes tók á arma sína og syngur enn þann dag í dag rétt tæplega sjötug.
Vicki Anderson
Vicki Anderson er ef til vill best þekkt fyrir samstarf sitt með The James Brown Revue. Hún er ekkja Bobby Byrd og móðir Carleen Anderson.
í ævisögu James Brown segir hann Vicki vera þá allra bestu söngkonu sem hann hafi heyrt í. Lög sem allir þekkja eru “You send Me”, ”What the world Needs Now” og “Think”. Frægasta lag Vicki og kannski það mikilvægasta á þessum lista- límið- er lagið “Message From the Soul Sisters”. Vicki var algjör töffari og gat sungið sál og fönk af krafti og fágun.
Vicki Anderson
Gloria Jones
Gloria er best þekkt fyrir lag sitt Tainted Love sem seinna sló í gegn í meðförum hinna bresku Soft Cell. Jones byrjaði ung að syngja eins og margar aðrar sálarsystur hennar. 7 ára hóf hún ferilinn og 14 ára var húun orðin fræg með Franski Kahrl og Billy Preson en þau kölluðu sig The Cogic Singers.
Það var síðan um 1964 sem hún átti nokkra smelli af plötu sinni Heartbeat Pts 1 & 2.
Gloria hefur verið kölluð drottning norðursálartónlistar (Northern Soul). Jones gaf út aðra plötu árið 1966, Come Go With Me.
Jones nam klassískan píanóleik og sérhæfði sig í Bach. Snemma á sjöunda áratugnum vann Jones fyrir Motown útgáfufyritækið og samdi og útsetti lög fyrir The Supremes, Marvin Gaye og Diönu Ross ofl. Hún hætti því eftir nokkur ár og hélt áfram ferli sínum sem söngkona.
Jones varð ástfangin af T.Rex (Marc Bolan) um svipað leyti og hún hætti hjá Motown. Þau eignuðust son (Rolan Bolan) og söng með T.Rex til 1777. Sjálf gaf Jones út plötu árið 1976, Vixen.
Árið 1977 varð mikill harmleikur í lífi Jones. Hún var ökumaður bíls sem lenti í árekstri. T-Rex lést samstundis og sjálf var hún nær dauða en lífi. Hún frétti ekki af dauða manns síns fyrr en daginn sem hann var jarðaður. Þegar hún var síðan útskrifuð af spítalanum komst hún að því að allar eigur T-Rex voru farnar. Líklega höfðu aðdáendur og vinir hans tekið þær. Það eina sem hún fékk í sinn hlut. Jones flutti með son þeirra, Rolan ti Los Angeles. Slypp og snauð. Og sorgmædd. Nokkrum mánuðum síðan gaf hún út Windstorm, plötu sem eru tileinkuð Bolan. Á baki plötuumslagsins stendur: “Special dedication in memory of my sons father, Marc Bolan, whom we miss very much.”
Gloria Jones
Lyn Collins
Lyn Collins er ein af mörgum samstarfskonum James Brown á þessum lista. Fyrstu plötuna hljóðritaði hún 14 ára og hennar stærsti smellur var lagið “Think” með Brown. Eftir það söng Collins helst bakraddir. Það var ekki fyrr en snemma á níunda áratugnum sem hún reyndi fyrir sér aftur sem söngkona. Hún gaf út smáskífuna “Shout” árið 1993. Collins dó árið 2005 aðeins 56 ára vegna hjartveiki.
Spanky Wilson
Viðurnefniðið Spanky kemur ekki til af góðu nefnilega vegna barsmíða föður hennar í barnæsku. Hún var sjálf afskaplega óstýrilátt barn og fjölskyldan öll heldur ófriðleg.
Spanky hefur unnið með listamönnum eins og Marvin Gaye, Sammy Davis Jr, og Jimmy Smith. Hún fluttist árið 1985 til Parísar og var hluti af tónlistarsenunni þar og varð síðan gríðarlega vinsæl í Bretlandi. Hennar síðasta plata var I’m Thankful sem hún tók upp með The Quantic Soul Orchestra.
Queenie
Marie “Queenie” Lyons er ráðgáta. Eftir eina plötu “Soul Fever” sem kom út árið 1970, hvarf hún algerlega af sjónarsviðinu. Þótt plata Marie hafi verið góð þá var hún eiginlega dropi í hafið á þessum tíma og kannski sérstaklega þetta ár. Hún seldist lítið sem ekkert. Það var ekki fyrr en áratugum seinna sem platan þykir einna verðmætasta og eigulegasta plata safnara sem dá sálartónlist.
Patti Jo
Lítið er vitað um Patti Jo annað en að hún vann töfrum líkasta útfáfu af Aint No Love Lost og Make Me Believe in You eftir Curtis Mayfield. Vildum að við vissum meira um þessa stórkostlegu söngkonu og viljum leyfa henni að vera í slagtogi með öðrum frábærum sálarsystrum. Svo margar söngkonur í þessum bransa hurfu af sjónarsviðinu þrátt fyrir algera snilligáfu. Því miður fundum við ekki einu sinni nothæfa ljósmynd af Patti sem var sextán ára þegar hún söng þessi lög.
Letta Mbulu
Letta Mbulu kemur frá Suður Afríku. Hún ferðaðist víða frá heimalandinu strax sem táningur. Fyrst með söngleikinn “King Kong” sem varð vinsæll í Bretlandi. Hún fluttist til Bandaríkjanna árið 1965 vegna aðskilnaðarstefnunnar í heimalandinu. Þar vann hún með Harry Belafonte og Cannonball Adderley og síðar meir, Michael Jackson.
Söngvar Lettu eru fullir gleði en hún náði aldrei frægð sem sólósöngkona heldur fremur sem tónlistarhöfundur.



April 23rd, 2010 → 9:43 am @ kristjana
0