ReiðhjólaKría

April 16th, 20102:57 pm @ arna

1


ReiðhjólaKría

Vorið er komið og dagarnir fullkomnir til hjólreiða. Hjólið ættirðu að geta notað langt fram á veturinn, einna helst þarftu að huga að því að hlífa því fyrir veðuröflunum og umhverfinu.

“Veðrið og umhverfið fer illa með hjól sem standa úti. Efni setjast utan á þau og skemma. Kaplar og keðjan ryðga og eyðileggjast. Gott viðhald er þess vegna nauðsynlegt” segir David sem rekur Hönnunar- og hjólaverkstæðið Kria Cycles.

Ekki er öll von úti þó hjólið hafi staðið úti og skemmst. Sérstaklega ekki ef hjólið er í grunninn fallegt. David tekur við hjólum sem fólk vill láta gera upp fyrir næsta sumar og auk þess er hann sá sem tala skal við viljirðu láta það eftir þér að fá sérsmíðað hjól.

Vinnustofa í “Fiskpökkunarhverfinu”

Kria cycles er staðsett úti á Granda, þar sem margir hönnuðir og listamenn eru búnir að hreiðra um sig á því svæði sem í gríni er kallað “Fishpacking district” sem vísun í “Meatpacking district” – vinsælt listamannahverfi í New York. Staðsett í portinu við hliðina á hönnunarbúðinni “Vopnabúrið”, að Hólmaslóð 4.

Vinnustofan hans Davids er full af hjólum í öllum regnbogans litum og allskonar fíneríi. Gullgjarðir og leðurhnakkar. Fljúgandi hjól í loftinu, skínandi nýir hjólavarahlutir á tekkborði sem við Ynjur settumst við og fengum kaffi. David settist hjá okkur og segist hafa opnað KriaCycles fyrir rétt um 9 mánuðum síðan.

Arkitekt sem hannar og smíðar reiðhjól

David er arkitekt og kom hingað til lands og starfaði við arkitektúr eftir að hafa lokið námi. Þegar kreppan skall á greip hann tækifærið og fór að sinna áhugamáli sínu og ástríðu sem snýr að hjólum, hönnun þeirra, og menningu.

David er umhugað að kynna hjólamenninguna fyrir sem flestum og vísar engum á dyr sem til hans kemur. ,,Ef það kemur fólki út að hjóla þá geri ég það”, segir David sem vinnur jafnt við það að standsetja ryðgaða fjallahjólafáka sem og hanna hjól úr stálrörum með hönnun í hæsta klassa.

Í rauninni starfar hann einna helst einmitt á milli þessara tveggja ólíku póla – auðmjúka viðgerðarmannsins og hugmyndaríka hönnuðarins. Hann fær oft hjól í hendurnar frá fólki sem hefur nokkurn vegin hugmynd um hvernig það vill að gripurinn líti út. David tekur við og hjálpar til við val á púðurlakkslit á hjólið, festingum og gjörðum, hnakk, stýri og hvaðeina. Nýtt hjól fæðist svo hjá honum úr því gamla.

“Það er algjör synd að henda ágætis hjóli þó það sé ekki í fullkomnu standi. Það er þó það sem margir hafa gert síðustu ár” segir David en bætir því við að nú sé tíðin önnur. Kría Cycles veitir alhliða viðgerðarþjónustu fyrir allar tegundir reiðhjóla og gjaldið fyrir klukkutímann er 4000 krónur.

Reiðhjól í samræmi við þinn persónuleika

“Það er algengara nú en áður að fólk vilji gera upp gömul hjól og gefa því meiri karakter. Ef þú klæðir þig á hverjum degi í samræmi við persónuleika þinn og hefur sterk stíleinkenni ættirðu auðvitað að leyfa því að ná til hjólsins þíns líka” segir David og bætir því við að hjólreiðamenningin sé að komast í tísku. “Það er auðvitað bara frábært, því fleiri að hjóla – því betra, og það er ekkert að því að lífga upp á umhverfið um leið”.

Endurhönnun á gömlu hjóli kostar yfirleitt frá 60.000 kr. og sérsmíði á nýju hjóli frá grunni kostar frá 150.000 kr. Þetta eru í báðum tilfellum hjól sem eru hönnuð sérstaklega fyrir notandann samkvæmt hans óskum.

Ekki bara upp á punt!

Hreinleiki og einfaldleiki einkenna Kríu hjólin. David kýs helst sjálfur eingíra hjól eða innbyggða öxulgíra. Hann segir jafnframt að hjólreiðar árið um kring við íslenskar aðstæður geri lífið einfaldlega auðveldara, viðhaldið minna og hjólið helst hreint og gangurinn óaðfinnanlegur. Láttu hjólið því ekki bara standa þarna upp á punt. Af stað með þig!

Ef þú þarft að koma hjólinu þínu undir hendur Kríu hjólasnillinga er best að hringja beint í David í síma 659 1595 eða senda póst á info[at]kriacycles.com