Raunveruleikinn bítur

April 20th, 201012:44 pm @ kristjana

0


Raunveruleikinn bítur

Reality Bites er algjör snilldarmynd frá tíunda áratuginum. Winona Ryder og Ethan Hawk. Stór slurpukók með röri. Sígó og rómantík háskólaára. Gítarspil og drama. Þeir virtust nokkrir sækja innblástur í þennan tíma og þennan stíl, hönnuðirnir í útlöndum fyrir línur sínar í haust og vetur.

Reimið á ykkur dr. Martens skóna

Við ættum að fara á búðarrölt. Kíkja í Rokk og Rósir, Spúútnik, Hjálpræðisherinn, RauðaKrossbúðirnar o.s.frv. Leita að blómakjólum, síðum skyrtum og vestum. Reima Dr. Martens skóna á okkur og raula MY SHARONA. Urban Outfitters gætu líka aðstoðað við að nálgast þennan flotta stíl, eins og sjá má á myndinni hér til hliðar. Þar er ávallt að finna úrval af blómadressum í grófari stílnum.


Það er hægt að treysta á Levis ef leitað er að flottri skyrtu eða vestum:
Top Shop er líka góður brunnur, sokkabuxur og prjónakjóla er að finna þar.