Pizza frá Napólí

April 12th, 20102:15 pm @ arna

0


Pizza frá Napólí

Hvert hérað á Ítalíu hefur sína sérstöku pizzafyllingu en alltaf er þó ostur og tómatar aðaluppistaðan í fyllingunni. Pizzur frá Napólí innihalda ansjósur, ólífur og ostinn má spara.

Pizza Napólí handa 6 manns:

Deig:

Eitt bréf af þurrgeri
500 gr. hveiti
3 dl volgt vatn
1/2 dl ólívuolía
1/2 tsk salt

Sósa:
1/2 dl ólívuolía
5 marin hvítlauksrif
2 dósir af tómötum
2-3 msk tómatmauk
1 smátt saxaður laukur
Basilikka-salt-pipar

Fylling:
1 dós af ansjósum
1 lítil krukka af svörtum steinlausum ólífum
ca 100 gr af feitum osti (Gouda, 26%).

Aðferð:
Gerið er sett í hluta ylvolgs vatnsins. Í aðra skál er sáldrað saman hveiti og salti. Gerblöndunni er hellt varlega í miðju, þá er olíu bætt við og því sem eftir er af vatninu. Hrært saman. Deigið er síðan tekið upp úr skálinni og hnoðað á borði þangað til það er orðið þjált.  Hnoðið það í kúlu og leggið í hveitistráða skál með klút yfir. Deigið þarf að hefast í að minnsta kosti 30 mínútur á hlýjum stað.  Sósugerðin er einföld. Laukurinn er saxaður smátt og mýktur á pönnu, mörðum hvítlauknum bætt við og hann látinn krauma í olíunni þangað til hann gefur frá sér góðan keim. Passið að láta hann ekki brenna. Þá er tómötunum og tómatmaukinu bætt við og blandan látin krauma í 5-10 mínútur. Bragðbætið að síðustu með örlitlu af salti (afar litlu því ansjósurnar eru saltar) og pipar.
Til að pizzadeigið festist ekki við ofnskúffuna er gott að pensla hana með olíu. Fletjið deigið út á ofnskúffuna. Smekksatriði er hversu þykkt deigið er. Ef þú vilt hafa pizzabotninn þunnan áttu nóg deig til að þekja tvær ofnskúffur.
Smyrjið sósunni yfir botninn og setjið sardínur, ólífur og ost yfir. Að síðustu er gott að strá oregano yfir. Ef þið viljið pipar á pizzuna þá er betra að setja hann á þegar pizzan kemur úr ofninum. Pizzuna þarf að baka í um 20 mínútur við 200 gráður. Fylgist vel með henni í ofninum, síðustu mínúturnar er gott að hækka hitann upp í 260 gráður. Við það verður botninn stökkari en ella.