RSS
Bláberjabimbó →  April 18, 2010 0

Njóttu þess að vera og verða ástfangin. Notaðu umhverfið. Nýttu daginn. Náðu því besta úr því sem er beint fyrir framan nefið á þér. Taktu einhvern með þér.

Ballerínur og hárhnútar →  April 18, 2010 0

Samfellur og tútúpils, hárhnútar og kinnalitur. Ekki svo væmin heldur glæsileg, hnarreist og fögur. Samfellurnar eru komnar aftur í notkun. Donna Karan á eiginlega heiðurinn af því að koma þeim elskum á sjónarsviðið og þær voru aðalaðal í byrjun tíunda áratugarins. Nú eru þær aftur sjáanlegar og minna okkur á að við getum litið út eins [...]

Gömul tæki færð í glamúrgallann →  April 17, 2010 0

Margir búa í eldra húsnæði með stórum, gömlum pottofnum sem eru oftast lítið augnayndi. Þeir verða fljótt óþrifalegir og stundum er á þeim margra ára lag af málningu í alls kyns litum. Hvað er hægt að gera? Og hvað má gera við ljóta ísskápinn sem þú keyptir til bráðabirgða í Góða hirðinum fyrir lítinn pening?

Boðorð fyrir konur á barmi taugaáfalls →  April 17, 2010 0

Ef að kvíði og streita eru að kremja þig í klessu þá þarftu að læra boðorðin 10 um streitustjórnun og að borða mat sem gefur þér kraft í baráttunni! Hljómar þetta kunnuglega? Ef svo er þá ertu í slæmum málum og væntanlegur heilsubrestur er eitthvað sem þú getur veðjað aleigunni uppá.

ReiðhjólaKría →  April 16, 2010 1

Vorið er komið og dagarnir fullkomnir til hjólreiða. Hjólið ættirðu að geta notað langt fram á veturinn, einna helst þarftu að huga að því að hlífa því fyrir veðuröflunum og umhverfinu. “Veðrið og umhverfið fer illa með hjól sem standa úti. Efni setjast utan á þau og skemma. Kaplar og keðjan ryðga og eyðileggjast. Gott viðhald [...]

Spennandi Stokkhólmur →  April 16, 2010 0

Það er ekki að ástæðulausu sem stórborgin Stokkhólmur er stundum nefnd Feneyjar norðursins. Miðhluti Stokkhólmar  er byggður á fjórtán eyjum og ströndum skerjagarðarins og 53 brýr tengja eyjarnar. Eyjarnar og vatnið gefa Stokkhólmi heillandi karakter. Gamli miðbærinn, Gamla Stan, er hjarta Stokkhólms. Í  þessum hluta borgarinnar ríkir einstakt andrúmsloft sem minnir á gamla tíma og það [...]

Snærós Sindradóttir →  April 15, 2010 0

Bókin kenndi mér líka um nýja fleti á sjálfri mér og ég sá mikið af mér í Bjarti, ég á álíka erfitt og hann með að biðja fólk um aðstoð. Sjálfstæðið ofar öllu, ef þið skiljið hvað ég á við... Þá er ég hrifin af þeirri bók sem ég las síðast: Votlendi er nýútkomin bók eftir Charlotte Roche og í raun mjög merkileg lesning. Ég veit í raun ekki hvort um er að ræða argasta klámrit eða ótrúlega mikilvægan lið í kvenfrelsisbaráttunni.

Topp 10 leiðir til að sigrast á myrkrinu →  April 15, 2010 0

1.Tónlist og kaffi Þegar þú vaknar líkistu górillu bæði í hegðun og útliti. Þú ráfar þung í höfði um íbúðina, búin að gleyma almennu tungutaki og urrar þess í stað á nærstadda. Gott ráð við górilluheilkenninu er að vakna við tónlist og eiga ómótstæðilegt kaffi og með því í morgunmat. Uppáhaldstímaritið má liggja á eldhúsborðinu fyrir [...]

Topp 10 leiðir til þess að fæla frá þér karlmenn →  April 15, 2010 0

Við getum ekki alltaf verið að úthúða karlmönnum og ókostum þeirra til samlífs með okkur konum. Sumum konum er nefnilega ekki viðbjargandi! Við þekkjum þær. Og við erum þær. Kannski erum við sekar um brotabrot af hinu og þessu í eftirfarandi upptalningu um topp 10 leiðir til þess að fæla frá karlmenn (og fólk almennt!) 1. [...]

Topp 10 höfuðföt →  April 15, 2010 0

Við fáum innblástur af tískupöllunum og skoðum falleg höfuðföt. 1. Undir áhrifum Ameliu Earhart 2. Bóhem 3. Keisaraynja 4. Dramó 5. Pæjur 6.Hendur í hári? 7.Dúskar 8. Glamúr 9. Meira af Ameliu…. 10.Djassaðar