Kynnist Lulu!

April 19th, 20109:28 am @ kristjana

0


Kynnist Lulu!

Lulu deKwiatkowski er listakona sem hefur vakið mikla athygli fyrir textílhönnun sína. Hún er alin upp í ævintýralegu ríkidæmi og naut þess besta sem lífið hefur upp á að bjóða. Einkunnarorð Lulu eru enda: “Frelsið til að njóta gæða fegurðar í lífinu gefur því aðra vídd, það er eins og að geta flogið meðan aðrir ganga.”
Frá æskuheimilinu í Hampton, lá leið Lulu í Parsons School of Design í New York þar sem hún lærði myndlist. Eftir námið bjó hún í París í fimm ár, lagði stund á listmálun og ferðaðist um heiminn þveran og endilangan í leit að ævintýrum.
Í verkum hennar endurspeglast sá ævintýraheimur sem hún lifir í af lotningu og væntumþykju í garð fjölskyldu sinnar.  Það var síðan afdrifarík heimsókn í litla vefnaðarvöruverslun í Frakklandi sem breytti hugmyndum hennar um hvert hún vildi stefna. Hún helgaði sig textílhönnun. Árið 2008 gaf hún svo út bók sem vakti gríðarlega athygli. Bókin sem ber heitið Lulu, er eins konar sjálfsævisöguleg ferðadagbók og skissubók, handskrifuð og uppfull af ævintýrum og skemmtilegri sérvisku.
Hér að neðan í flettistiku, eru nokkrar svipmyndir af verkum hennar og úr bókinni Lulu til innblásturs: