Sigríður Björk lögreglustjóri

April 23rd, 201010:30 am @ kristjana

0


Sigríður Björk lögreglustjóri

Sigríður Björk Guðjónsdóttir er lögreglustjóri á Suðurnesjum og segir okkur af bakgrunni sínum og menntun og afhverju það er mikilvægt að fjölga konum í lögreglustétt.

Lýstu starfi þínu:

Ég er lögreglustjóri á Suðurnesjum. Starfið felst annars vegar í að gæta öryggis íbúanna í umdæminu, sem eru rúmlega 21 þúsund talsins og hins vegar í löggæslu og landamæragæslu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Starfið er skemmtilegt og gefandi en getur verið krefjandi á stundum. Mitt hlutverk er fyrst og fremst að sjá til þess að starfsemin gangi vel og örugglega fyrir sig, að ryðja úr vegi hindrunum og leyfa þessu góða fólki sem hér starfar, sem eru um 100 manns, að vaxa og eflast í starfi og gefa tilbaka til samfélagsins það sem til okkar er greitt.

Hvað drífur þig áfram?

Það sem drífur mig áfram er áhugi á öflugri löggæslu í landinu, að bæta samfélagið sem við búum í og að sjá til þess að íbúar og ferðamenn fái góða þjónustu.

Hver er bakgrunnur þinn og menntun?

Ég er lögfræðingur frá HÍ, með meistaragráðu í Evrópurétti frá Háskólanum í Lundi, lærði stjórnun í Lögregluskóla ríkisins og hjá CEPOL, evrópska lögregluskólanum. Ég byrjaði starfsferil minn hjá sýslumanninum í Hafnarfirði og svo hjá skattinum, var skattstjóri á Vestfjörðum, svo sýslumaður á Ísafirði, því næst aðstoðarríkislögreglustjóri og er nú hér! Ég er líka prestmaddama og tveggja barna móðir.

Hvað er það ánægjulegasta við starf þitt?

Það ánægjulegast við starfið er að bjarga mannslífum eða stuðla að björgun þeirra með beinum eða óbeinum hætti. Þar á ég sér í lagi við fíkniefnavandann en einnig er afar ánægjulegt þegar tekst að snúa ungmennum á rétta braut með samstilltu átaki lögreglu, fjölskyldu og barnaverndaryfirvalda. Það er líka mjög gefandi að vinna með góðu fólki sem nýtur sín í starfi og er stöðugt að vinna við að bæta samfélagið í stóru og smáu.

Hverjir eru ókostirnir?

Ókostirnir eru þeir að við sjáum oft á tíðum mikla grimmd og erfiðar aðstæður fólks. Einnig á ég alltaf jafn erfitt með að þola þegar verið er að hagnýta sér slæma stöðu fólks til lögbrota, til dæmis til fíkniefnainnflutnings, þar sem sá er hagnast næst ekki.

Er mikilvægt að fjölga konum í lögreglustétt? Ef svo er, afhverju?

Það er afar mikilvægt að fjölga konum í lögreglustétt. Konur nálgast viðfangsefnin oft á annan hátt og það er nauðsynlegt að bæði konur og karlar starfi í sem jöfnustum hlutföllum innan hverrar stéttar. Slíkt leiðir til betri menningar og mér finnst kominn tími til að við sjáum konur sem yfirlögregluþjóna sem speglar hlutfall þeirra í lögreglunni. Á sama hátt þarf lögreglan einnig að hafa karla og lögregla sem einvörðungu væri skipuð konum eða í miklum meirihluta væri heldur ekki rétt samsett.

Hver voru lykilatriði þess að vel gekk að rannsaka mansalsmálið?

Lykilatriðin voru þekking lykilstarfsmanna á mansali, hvernig bera megi kennsl á mansal og hvernig standa beri að slíkri rannsókn. Þá var samstarf margra aðila forsenda fyrir því að rannsóknin gekk upp og má þar nefna mansalshópinn, ríkislögreglustjóra, lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu og á Stykkishólmi og fleiri má eflaust nefna. Einnig má nefna að þrautseigja starfsmanna var mikil í þessu máli, þar sem ekki var látið undan þrýstingi eða horft í fjölda vinnustunda.