Pattra Sriyanonge

April 26th, 201012:28 pm @ kristjana

0


Pattra Sriyanonge

Pattra Sriyanonge rekur tískubloggið: Pattras Closet. Þar birtir hún myndir af fatnaði, spáir fyrir um tískutrend og deilir með lesendum hugleiðingum um lífið og tilveruna. Bloggið er afar vinsælt og vegna þess hefur það vaxið að umfangi síðustu misseri og hefur þróast yfir í að vera hennar aðalviðfangsefni þessa dagana. Við forvitnumst um hagi þessarar kraftmiklu konur sem hefur óteljandi áhugamál og mikla lífsorku.

Pattra stillir sér upp með ómótstæðilega tösku

Segðu okkur frá sjálfri þér. Hvar ertu búsett?

Ég og unnusti minn erum búsett í Gautaborg þessa stundina og ég er ástfangin af borginni, hún er sjarmerandi og skemmtileg og leynir ekkert lítið á sér. Hann er að spila fótbolta hérna og ég eiginlega bara fylgdi með og núna þessa dagana verð ég kannski bara að segja að ég sé tísku-bloggari enda tekur það alveg merkilega mikið frá mér tímanum.

Hver er bakgrunnur þinn?

Ég fæddist í Tælandi og flutti til Íslands þegar ég var 8 ára og ég verð að segja að mér leist sko ekki á blikuna í fyrstu en núna finnst mér flutningurinn til Íslands líklega það besta sem komið hefur fyrir mig.  Ég hef fengið ýmis tækifæri. Það fyrsta fyrir tilviljun þegar ég var 16 ára og fór á Korn tónleika (bara alfarið vegna þess að ég fékk gefins miða). Þar hitti ég Júlíus Kemp sem bauð mér hlutverk ”Goth” stelpunnar í Strákarnir okkar.  Eftir það fór boltinn að rúlla af stað. Síðan þá hef ég tekist á við ótal af skemmtilegum og áhugaverðum verkefnum og uppgötvaði í kjölfarið að leiklistin er eitthvað sem mig langar að leggja fyrir mig. Ég held að ég hafi samt aldrei verið stoltari en þegar ég fékk tækifærið í Þjóðleikhúsinu árið 2008 í leikritinu Macbeth, stórkostleg upplifun og ólýsanlega mikill heiður!


Skemmtilegar sokkabuxur með hjartamynstri

Segðu okkur af vefsíðunni þinni, hún er víst óhemju vinsæl!

Ég hef ætlað mér að gera þetta ansi lengi en einhvern veginn aldrei orðið af því en svo bara þýddi ekkert annað en að láta vaða og nýta tækifærið núna þegar ég hef allan heimsins tíma og ég er mjög fegin að það hafðist því að mér finnst þetta hrikalega skemmtilegt og hef brennandi áhuga fyrir þessu. Síðan er náttúrulega fyrst og fremst áhugamál og eitthvað sem ég geri alfarið fyrir sjálfan mig en það yrði vissulega ánægjulegt ef það gæti orðið eitthvað meira úr þessu og það er æðislegt að vita að það eru virkilega einhverjir þarna úti sem lesa bloggið mitt. Þetta er bara algjörlega staðurinn minn þar sem ég get tjáð mig að vild.


Fólk, staður og stund, tímarit og ljúffengur matur kveikja í Pöttru

Hvaðan færðu innblástur?

Hreinlega allsstaðar frá, öllu umhverfinu og fólkinu í kringum mig, elska að rölta um hérna í Gautaborg sjá mismunandi týpur úti á götu. Svo er heimurinn í dag orðinn svo netvæddur og ég verð að játa að ég er ansi mikill net-vafrara-nördi og sé oft á dag eitthvað á netinu sem veitir mér innblástur. Tísku bloggarar sem þora að fara sínar eigin leiðir eru líka vert að dást að svo er ég forfallinn tímarita-sjúklingur.


Með fullt fangið

Hvað langar þig til að gera í framtíðinni? Hvert stefnirðu?

Framtíðin er eiginlega bara samansafn af öllu sem ég hef áhuga á. Ég hef komist að því að maður þarf alls ekki að verða einungis eitthvað eitt og ég er svolítið týpan sem vill gera allt en ég meina maður lifir bara einu sinni og um að gera að nýta og njóta þess. Núna er ég að að blogga og skoða mér um í tískuheiminum og fatahönnun heillar mér ansi mikið. Svo er leiklistin aldrei langt í burtu og það er klárt mál að ég stefni mun lengra í henni. Svo verð ég að segja að ég er ansi sleip í eldhúsinu og elda á hverjum degi, eitt  skemmtilegasta sem ég geri er að útbúa eitthvað gómsætt og prófa mig áfram.  Ætli draumurinn sé ekki bara að verða leikkona/fatahönnuður með minn eigin kokkaþátt…já segjum það, svei mér þá hvað það yrði yndislegt.


Alexa Chung þykir einstaklega smekkvís

Hverjar eru helstu fyrirmyndir þínar?

Ég hef eiginlega engin fyrirmynd svo sem en hvað stíl varðar þá held ég voða mikið uppá Sienna Miller, elska hennar bohemian-chic stíll og Alexa Chung hefur ekki enn mistekist að mínu mati. Hún er alltaf svo flott án þess að reyna of mikið.


Pattra í venjulegum hvítum bol sem hún spáir að verði vinsæl flík í sumar

Áttu þér einhverjar uppáhaldsverslanir og verslar þú mikið?

H&M verður ábyggilega fúl út í mig ef ég nefni þá ekki enda varla annað hægt þegar maður er í Svíaríkinu,  annars er ómögulegt að fara í Monki og koma tómhendur út. Svo er vintage búðin Beyond Retro búin að vera í miklu uppáhaldi eftir að ég flutti hingað, þar getur maður eytt heilum degi og fundið sér allskyns gersemar. Ég elska að kaupa mér flík sem ég get svo verið í án þess að sjá einhverjar skvísur í því sama út á götu. Svo ef ég væri að vaða í sand af seðlum þá myndi ég sennilega versla meira í Acne og Whyred. En ótrúlega en satt þá versla ég alls ekki mikið, ég hef sankað að mér meira en nóg af fötum eftir marga ára vinnu í fatabúð og þegar ég flutti hingað þá lofaði sjálfri mér því að fara ekki yfir um og ég er algjörlega búin að standa við það. Það er líka svo gaman að kaupa sér second hands ódýr flíkur sem enginn á eins, svo mun ég vera dugleg að sauma á mig sjálf.


Pattra elskar að búa í Gautaborg

Hvaða síður heimsækir þú helst sjálf?

Það er blessunarlega til svo mikið af flottum sænskum tísku-bloggurum og ég held mikið uppá nokkurar þeirra. Til að mynda er ég mikill Elin Kling (http://stylebykling.tv4.se/) aðdáandi en hún er snillingur í að láta einföld lúkk verða ”edgy” og ég er líka húkt á genginu hjá Freshnet.se Natalie Karlsson er einnig flott og sæt blogg dama héðan úr Gautaborg.   Ég kíki svo reglulega inn á thephotographylink.com, frábær síða.
Lookbook.nu og Stockholm streetstyle eru líka í miklu uppáhaldi.

Hvað er allra næst á döfinni hjá þér?

Mín ástkæra saumavél fékk að koma með mér út um daginn og ætla að vera dugleg að sauma loksins þar sem að þetta blessaði vefsíðan mín kviknaði til lífsins út frá því að mig langaði svo mikið að tjá mig um mínar hönnun og hugmyndir þó að saumskapurinn minn er ekki alveg uppá marga fiska en mér finnst þetta með eindæmum skemmtilegt og hugmyndirnar endalausar. Svo langar mig auðvitað að reyna fyrir mér í leiklistinni meðan ég bý hérna í Gautaborg og akkúrat núna er ég í viðráðum við umboðsskrifstofu sem á vonandi eftir að færa mér skemmtileg verkefni.