Ólukkan virðist elta sumar konur. Þær safna stöðumælasektum, brjóta háa hæla og gleyma að renna upp buxnaklaufinni. Gyrða kjólinn ofan í sokkabuxurnar og lenda ávallt í staðbundnum hvirfilbyl þegar þær eru á leiðinni út á lífið með vandlega greitt hárið. Þjónustufulltrúar góðærisbankanna hata þær og tannlæknirinn nennir ekki að deyfa þær. Kærastar þessara óheillakráka eiga það sameiginlegt að vera hrikalegir gallagripir. Allt frá því að vera lausgyrtir í að vera ruddalegir og leiðinlegir. Hvað er málið? Hugsa þær. En vitið til óheillakrákur geta snúið á ólukkuna. Hér eru nokkrar góðar leiðir til þess:
1. Settu málið í nefnd
Rót flestra þinna vandamála tengjast að öllum líkindum hvatvísi þinni. Þú gleymir að draga andann og velta málum fyrir þér. Fáðu jarðbundnari vinkonur með þér í lið og settu sem flest mál í nefnd. Þig langar á stefnumót með þessum fjórfráskilda með athyglisbrestinn, vinkona þín mun líklega segja þér frá nálægri framtíð þinni sem verður í samvinnu við félagsmálayfirvöld! Eftir því sem þú berð fleiri veigamikil mál undir glögg augu vina því meiri vigt síast inn í þína eigin vitund og ákvarðanatöku. (Til að gjalda vinargreiðann getur þú vonandi gert líf jarðbundnu vinkvenna þinna litríkara og ástríðufullra með smitandi lífsorku þinni!) En þessi frábæra lífsorka þín og ástríður eru yndislegur en… tvíeggjaður eiginleiki. Ekki gleyma því.
2. Skipuleggðu þig
Skrifað í hástöfum: SKIPULEGGÐU ÞIG! Við erum ekki að tala um að krota dagdrauma um líkamsrækt og fatakaup á blað. Heldur harðkjarna, fasíska tímastjórnun þar sem þú skipuleggur meira að segja hvenær þú ferð út úr húsi á morgnana og hvenær þú ferð í háttinn. Staðreynd: Sumar konur verða að gera þetta annars eru þær algert rekald og dagarnir líða hver af öðrum án þess að nokkuð hreyfist í rétta átt.
3. Vertu á réttum stað á réttum tíma
Óstundvísi er ömurleg og þeir sem mæta ekki á réttum tíma eru ofurseldir ólukkunni. Afskaplega einfalt að breyta þessum hrikalega ávana. Breyttu öllum klukkum sem eru nálægt þér og flýttu þeim mismikið. Þú gleymir fljótt hvaða klukka er “réttust” og ferð að treysta á eigið hyggjuvit. Áður en þú veist hefur þú umbreyst í þessa frábæru týpu sem mætir fyrst. Trausta týpan! Hún ferðast á hraðbraut lífsins takk fyrir svo það er svo sannarlega þess virði að losa sig við óstundvísina.
4. Bein í nefið takk!
Ólukkan eltir líka ósjálfstæðar og óöruggar konur. Hér rétt fyrir ofan gáfum við þá ráðleggingu að hlýða á ráð góðra vina en í guðanna bænum ekki vera ofurseld skoðunum annarra. Því hvað verður þá eiginlega úr þér? Hvernig ætlarðu að taka ákvarðanir? Hver og ein vinkona þín hefur sína skoðun og ef þú ætlar að elta þær allar verðurðu fremur úfin og tætt (og ferlega leiðinleg). Bein í nefið. Réttu úr þér og segðu þína skoðun og veltu fyrir þér öllum hlutum með gagnrýnni afstöðu til þeirra. Spurðu spurninga og ræktaðu dómgreindina.
5. Skoraðu!
Þetta verður ekki sagt nógu oft. Þú verður að sá til að uppskera. Hefurðu lesið litlu gulu hænuna? Lestu hana aftur. Ekki gera ekki neitt og allt það. Bútaðu brjáluð markmið í pínkulítil markmið svo þú náir einhverjum árangri á hverjum degi. Vertu yfirmáta ánægð í hvert skipti og hrikalega æst í að klára næsta áfanga. Öskraðu upp yfir þig og sláðu í borðið. Sigri hrósandi. Það er málið.
6. Ekki vera hækja
Óheillakrákur eru annars hugar og oft rata þær á glapstigu vegna þess að þær eyða tíma sínum í að leysa annarra manna vandamál og aðstoða aðra við að uppfylla sín markmið meðan þeirra eigin safna ryki. Vaknaðu krákan þín. Sinntu eigin verkefnum og engum öðrum. Vertu ísköld og segðu það hreint og beint út: Því miður, ég get ekki aðstoðað þig. Ég er bara á kafi…
7. Einbeittu þér
Ja, tja gæti það verið möguleiki að verstu óheillakrákurnar séu með vott af athyglisbresti? Það er kannski þess vegna sem þær fara lenda í árekstri meðan þær horfa inn um búðarglugga á Laugaveginum? Og lyklar, greiðslukort og ökuskírteini eru alltaf týnd í einhverju hrikalegu svartholi sem sumir kalla tösku? Hmmm….er ekki kominn tími til að taka þetta föstum tökum? Fáðu þér tösku fyrir athyglisfatlaða með hólfum. Festu kortaveskið í með gormi og lyklana líka. Hafðu svo blessaða töskuna nógu stóra (og fallega og dýra) til að þú gleymir henni aldrei! Málið leyst (að hluta…)
8. Sofðu vel
B-manneskjur eru oft ansi skrautlegar. En hvað við elskum þær og dáum því þær eru svo skemmtilegar og hlýjar. Þær geta ómögulega vaknað á morgnana og eru algerar framkvæmdamaskínur langt fram á nótt. Séu B-manneskjur neyddar til að lifa reglubundnu lífi frá 8-4 er útkoman oft ansi átakanleg. Við hittum þær fyrir ringlaðar og í fötunum á röngunni, svefnvana og algerlega á skjön. Efni í magnaðar óheillakrákur. Eina ráðið er að sannfæra B-manneskjuna um að breyta um starfsvettvang en þangað til að leggja sig um eftirmiðdaginn svo það lini aðeins á ruglinu.
9. Ekki éta allan snúðinn…
Já þú ert rosalega klár og með náðargáfu og allt en slakaðu á kona. Þú byggir ekki Róm á einum degi. Jú þig langar til að stofna fyrirtæki sem leigir út rafbíla-snilldarhugmynd… og ert byrjuð að plana smíðar á 900 fermetra sumarhúsi í Borgarfirði fyrir gróðann. Allt á að gerast strax í dag og þér finnst sem þú hugsir og framkvæmir á leifturhraða. En bíddu hægan. Þetta kemur allt saman og þú endar útbrunnin og bitur (með hægðatregðu og hárlos af stressi) ef þú ætlar þér of mikið of skjótt. Ekki éta allan snúðinn í einum munnbita!
10. Láttu krukka í þig
Allir hafa gott af því og flestir eru fastir í einhverjum leiðum ávana sem koma þeim sí og æ í ógöngur. Hættu að skammast þín fyrir gallana og leystu málið. Það er skemmtileg áskorun. Hjá sumum er það óhófleg eyðsla á peningum, öðrum misnotkun áfengis, neikvæðni, fljótfærni, leti, doði, lítið sjálfstraust, þunglyndi og kvíði, ofát og ýmsir átröskunarsjúkdómar. Losaðu þig við leiða ávana og sjáðu ekki til hvort þessi hamur óheillakrákunnar fellur ekki af þér!
Titilmynd: Murder of Crows eftir Jack Pierce



Ásta Sóley
2 Árs síðan
Þetta er svo yndisleg grein að ég fæ því ekki lýst með orðum !! Hitti algjörlega í mark
Skynsamar lausnir á óskynsamlegum vandamálum.. lovsit !!!