Hrátt galla og grönsj

April 20th, 20104:13 pm @ kristjana

0


Hrátt galla og grönsj

Hressandi að fá aftur tíma kæruleysis og rugls. Að henda sér í gallabuxur með götum og spila klæðin upp eða niður með því að nota ýmist hálfgagnsæjar silkiskyrtur sem daðra við goth, eða risastóra kaðlapeysu sem þjónar næstum hlutverki svefnpoka.

Einkenni

Levis er merki sem á heiður skilinn fyrir að halda fast í sín einkenni. Nú er fyrirtækið að gera út á bæði vintage fatnað sem hægt er að kaupa á netinu, og eins að vekja aftur til lífsins það sem einkennir buxurnar þeirra. Hnepptar upp! Sem minnir mann aftur á tíunda áratuginn. Levis buxur og afabolir. Vesti og mellubönd. Ahh… Góðir tímar sem eru að koma aftur. Gallaefni – allt úr gallaefni er stórkostlega viðeigandi núna. Og verður ennþá meira af því í vortískunni 2010. Þú þarft ekki að vera feimin við að leyfa þér að splæsa í einar svona…
Og möguleikarnir eru endalausir – hentu þér í hardcore


Stutt í köldu veðri

Það gengur alveg ennþá! Skelltu þér í þykkar sokkabuxur. Það er ekki verra ef þær eru mynstraðar eða aðeins meira spennandi en biksvartar venjulegar. Einhvern vegin gengur þetta upp þegar búið er að para saman oggulitlum gallastuttbuxum og risastórum prjónayfirhöfnum. Takið líka eftir því hvað rauða taskan gerir mikið.


Stutt í heitu veðri

Þegar sumarið lætur á sér kræla er síðan alger klassík að skella sér í gallastuttbuxur. Ekki hafa þær of þröngar!  Víðari stuttbuxur geta komið skemmtilega út með fallegu belti og skyrtu. Hér sést fyrirsætan Magdalena Frackowiaklevi spóka sig á heitum sumardegi.


Pils

Sem eru stutt… já, var ekki sú tíðin að pils fóru utan yfir buxur? af hverju ekki? Nú, eða að nota sömu tækni og við gallastuttbuxurnar. Þykkar sokkabuxur.


Stuttbuxurnar aftur

Er þessi mynd ekki bara tekin eftir að þú ert komin á staðinn og komin úr prjóninu? Hefðir kannski ekkert þurft að fara úr sokkabuxunum. En hver er ég að dæma um það?


Litli gallajakkinn

Algjör, endalaus klassík. Ef eitthvað glæðir leiðinleg vetrarföt lífi og gerir útlitið glimrandi ungt og ferskt er það þessi litli gæi. Grafa inn í skápana. Eða heimsækja Spúútnik. Hér sést ofurfyrirsætan Heidi Klum spóka sig í einum góðum.


Öll snið

Haustið í ár er svo skemmtilegt að því leyti að öll buxnasnið eru í gangi. Við erum frjálsar frá þröngu niðurmjóu og með strákalegu tískunni, sem er að laumast inn, koma ný og spennandi snið.
Kíktu bara í búðirnar og sjáðu að flest merkin eru með fjölbreytta línu í ár.


Hrár kynþokki

Þetta eru alvöru buxur. Víðar og þægilegar, snjáðar og mjúkar. Rifnar – því að hverjum er ekki andskotans sama!
Þær eru þægilegar og heimilislegar ef við kærum okkur um, fáránlega sexí ef við viljum hafa það svo.


Ameríska kábbójaútlitið

Gallabuxurnar eiga nú einu sinni uppruna sinn þar. Kögrið hefur verið vinsælt líka. Ef þú vilt blanda þessu saman og vera svolítið USA. Gjörðu svo vel.


Grönsj

Grönsj er ekkert án þess að para leður með gallaefni. Ef þú ert alveg alveg alvöru. Þá ertu auðvitað með sylgjubelti. Farðu alla leið.


Tímalaus klassík

Audrey Hepburn hafði gallabuxurnar svartar eða dökkbláar. Grace Kelly og Marilyn féllu líka fyrir gallabuxum. Grace Kelly sást í víðum gallabuxum með uppábroti og minnir þessi kærastabuxnatíska sem hefur öllu tröllriðið upp á síðkastið mjög á hennar stíl. Marilyn hafði buxurnar þröngar og dökkar eins og Audrey nema línurnar voru heldur meiri og bombulegri. Hér til hliðar sést Audrey í Breakfast at Tiffanys að glamra á gítar í gallabuxum.