Helga Braga spyr Björk Jakobsdóttur 7 spurninga og heldur áfram nýjum lið Ynjunetsins þar sem konur spyrja hverja aðra að því sem þær lystir.
1. Hvenær ertu hamingjusömust?
Björk:
Það er svo margt sem veitir mér hamingju seinast þegar ég var hamingjusömust var síðastliðinn laugardag þegar við fjölskyldan vorum upp í hesthúsi og Óli 10 ára drengurinn minn var búin á hestanámskeiði og hafí kynnst stelpu á sínum aldri. Eftir leik úti á túni og gott nesti þá lágu þau og skríktu í heyinu meðan foreldrar settu inn hestana. Þá fékk ég algert hamingjukast. Hamingja yfir að vera í sveitinni, hamingja yfir að geta veitt barninu mínu þessa upplifun og hamingja yfir eiga frábæra fjölskyldu.
2. Hvað er síðasta vandræðalega augnablikið sem þú lentir í?
Björk:
Þetta er aðeins erfiðara. Ég hef nefnilega þann hæfileika að blokkera vandræðamómentin út úr minninu. Nenni bara ekki að eyða geymsluplássi í leiðindi.
Eina mómentið sem ég man eftir núna er frá unglingsaldri þegar ég fór í veiðiferð með bóndanum og kaupamanni á Brúsastöðum upp á Arnavatnsheiði og byrjaði á blæðingum og eyddi allri ferðinni í að rífa fóðrið innan úr úlpunni minni til að nota sem dömubindi. Ég man að ég hikstaði aðeins þegar að bóndinn spurði hvað hefði komið fyrir úlpuna mína.
3. Ef þú gætir talað fyrir nýjum lögum á alþingi, hvaða lög yrðu það?
Björk:
Lög um að setja leiklist og sjálfstyrkingu inn í grunnskólana. Það er alveg sama hvað við kennum börnum mikið á bókina og vinnum mikið í forvörnum. Ef börn eru krumpuð í sálinni og þora ekki að vera þau sjálf þá geta þau aldrei staðið með sjálfum sér í lífinu.
4. Hefur þú einhverntíman hlegið að óförum annarra?
Björk:
Ég hef hlegið að óförum samleikara minna á sviðinu. Það er fátt fyndnara en leikari sem getur ekki opnað hurð sem hann á að fara í gegn um og horfa á hann reyna að leysa hlutverkið án þess að detta úr karakter.
5. Hvert var þitt síðasta góðverk?
Björk:
Hvað er góðverk? Ég geri ráð fyrir að það sé verk sem lætur þér og öðrum líða vel. Ég fór í dag til afa á Hrafnistu og við skruppum saman niður á harmonikku ball frá 2-3 og fengum okkur kaffisopa á eftir. Í kvöld fór ég svo til systur minnar af því hún átti mjög erfiðan dag í dag. Þetta eru 2 góð verk þannig að ætli það flokkist ekki undir góðverk.
6. Hvaða manneskju lítur þú mest upp til?
Björk:
Ég veit að ég ætti að vitna í einhverja fræga og merkilega manneskju. En ég ætla bara að segja afi Ragnar Björnsson. Maður sem fæddist í Veturhúsum á Jökuldalsheiði. Þriðja barn af 9 bræðrum. Torfbær í niðdimmri íslenskri náttúru árið 1917. Foreldrar hans gátu einungis sent eitt barn til mennta og þar af leiðandi fékk afi minn ekki menntun og var sendur í kaupavinnu á unga aldri. 94 árum seinna standa afkomendur hans 6 börn öll með háskólamenntun. 15 barnabörn sem öllum gengur vel og 9 barnabörn sem öll eiga bjarta framtíð fyrir sér. Afrek ömmu og afa úr sárri fátækt upp í millistétt er ótrúlegt afrek og þau eru mínar fyrirmyndir.
7. Hvað er besta ráðið við að vera fúl á móti?
Björk:
Þú veist aldrei hvenær þú drepst þannig í guðana bænum reyndu bara að hafa svoldið gaman á meðan þú getur!
Björk hefur valið Þórunni Lárusdóttur til að svara spurningum næstu viku.




April 29th, 2010 → 9:21 am @ kristjana
0