Það er fátt sem minnir frekar á vorið en fagur fuglasöngur.
Hér búum við til lokkandi fuglanammi sem allir græða á.
Við skreytum trén, goggarnir éta sig sadda og við fylgjumst með og gleðjum augu og eyru um leið.
Þú þarft:
- 300 gr. palmin
- 7-8 dl fuglafræ
- piparkökuform
- bökunarplötu
- band
- grillpinna
Aðferð:
- Bræðið feitina í potti og setjið fuglafræin út í. Hellið blöndunni í kökuformin á meðan hún er heit. Hafið djúpa bökunarplötu undir formunum svo feitin renni ekki út á borðið (ég notaði að vísu venjulega bökunarplötu og setti smörpappír undir)
- Stingið gat í hverja köku með grillpinnanum eða öðru verkfæri sem nýtist sem “gatari” og kælið kökurnar.
- Þræðið bandi í gegnum gatið þegar blandan hefur kólnað og hengið upp í tré.
* Blandan sem ég setti í silikonformin heppnaðist best því þá lak feitin ekki út um allt og kökurnar héldust þar af leiðandi betur saman.
- Tilbúið
Myndir og texti: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir











Gréta
1 Ár síðan
Góð hugmynd Kolfinna
Ég fór beint og gerði svona, vildi svo til að ég átti gamalt palmín sem ég var að fara að henda og slatta af fuglafræum. Ég setti í form með glasi í miðju og nú hangir þetta í garðinum.
kolla
1 Ár síðan
Frábært að heyra!
María
1 Ár síðan
Gamalt palmín! Hljómar eins og bjarnagreiði fyrir fuglana, e.t.v er. þránuð feiti ekki góð fyrir meltinguna