Eplakaka hversdagsins

April 14th, 20106:21 pm @ arna

0


Eplakaka hversdagsins

Þessi eplakaka er mjúk og yndisleg, en ótrúlega einföld og yfirleitt á maður allt í hana. Þess vegna er hún hversdags. Það toppar ekkert kvöldkaffi sem samanstendur af þessari eplaköku, Earl Grey tei og húslestri eða huggulegu spjalli.

Þú þarft:

lítið kökumót

1 epli skorið í tvennt og svo í þunnar sneiðar

1 egg

125g sykur

125g smjör

125g hveiti

1 tsk lyftiduft

kanilsykur

Bakstur:

Byrjið á að þeyta saman eggið og sykurinn þar til það er ljós og létt blanda. Smjörinu er bætt út í og hrært vel. Hveitinu og lyftidufti er að síðustu bætt í og hrært.

Þessi uppskrift hentar vel í lítið kökumót td. 18cm þvermál, ef það er ekki of grunnt. Þá verður kakan mjúk og alls ekki þurr

Deigið er sett í mótið og eplasneiðunum raðað á yfirborðið. Því næst er kanilsykri stráð yfir og kakan fer í ofninn á  180-200°C í  30 mín.