Einföld skyrísterta

April 28th, 20102:34 pm @ arna

0


Einföld skyrísterta

Sumar tertur (ójá, líka sumartertur í þessu tilfelli) eru svo frábærar vegna þess að það er einfalt að búa þær til.
Þessi ísterta fellur ekki, tekur ekki óratíma og krefst þess ekki að eiga ómöguleg hráefni.
Hana á að búa til með slumpi. Bara svona eins og þér finnst henta.

Í meginatriðum er hún gerð svona:

Kökumót með lausum botni er smurt og áður en því er klemmt saman fer smjörpappír yfir botninn.
Hafrakex og smjör er mulið saman í skál þar til það verður nógu klesst til að geta þakið botninn á mótinu.

Mótinu með kexbotninum er skellt í kæli á meðan “ístertan” er búin til.

Hrærðu saman í jöfnum hlutföllum bragðbættu skyri og vanilluís. Hér var notað hindberjaskyr og til þess að gera tertuna pínulítið meira spennandi var bætt í 2-3 msk. af hindberjasultu (með berjunum í). Þessarri blöndu er hellt ofan á kexbotninn í mótinu og fryst í amk. 30 mín.

Þegar kakan er tekin úr frysti er ágætt að leggja mótið í snöggt heitavatnsbað til að losa ísinn frá mótinu eða verma það að utan með höndunum.

Skreytingin er skemmtilegust. Hér var klipptur út bókstafur afmælisbarnsins og lagður ofan á kökuna, kökuskrauti stráð yfir og pappírsbókstafurinn svo tekinn af. Fínt ekki satt?