Leikmynda- og búningahönnuðurinn Elín Edda Árnadóttir er einnig listamaður í eldhúsinu. Hún kann að galdra fram flottustu og óvæntustu rétti í heimi. Í þetta skiptið deilir hún með okkur fljótlegum og einföldum skyndirétti – ofnbakaðri eggjaköku sem nægir fyrir amk. 4
Hrærið saman 8-10 egg í skál og kryddið létt með td. Herbamare. Ef til eru ferskar kryddjurtir ss. graslaukur má endilega klippa það út í líka.
Notið stórt ofnmót og raðið í það hverju sem þið viljið hafa í eggjakökunni. Gott getur verið að setja reykt eða saltað kjöt, það getur verið afgangur af pylsu eða skinka. Soðnar kartöflur sem skornar eru í bita. Paprika, tómatar, sveppir og hverskonar grænmeti.
Hellið eggjunum yfir og rótið aðeins með gaffli þannig að eggjahræran fari yfir og undir allt saman.
Rífið ost yfir og setjið inn í 200 °C heitan ofn þar til osturinn ofan á er orðinn gullinn.
Gott er að bera fram með þessu ferskt salat og ferska sósu, td. graslaukssósu (sýrður rjómi sem í er hrært smávegis af söxuðum graslauk og rifinn hvítlauk á hnífsoddi)
Njótið





April 15th, 2010 → 4:01 pm @ arna
0