Þú ert alltaf pirruð og pikkar upp rifrildi eins og þú eigir heima í boxhring. Þú hefur ekki tekið frí síðan krumpusundbolir voru í tísku og þú tekur vinnuna “alvarlega”. Þegar þú kemur heim finnst þér heimilið eins og hlandskál og tekur “píslarvættinn” svo fjölskyldumeðlimir munu aldrei geta gleymt frammistöðunni. Þú eldar feitan mat og opnar einn bjór af því þú átt skilið að slaka á. Þú sest í sófann og starir á imbann. Er ekki örugglega despó í kvöld? Þú sofnar síðan eftir sjónvarpsþáttamaraþon en sefur illa. Vaknar svo of seint eins og birna eftir vetrarhýði og þarft að teyga í þig nokkra kaffibolla til að halda sönsum….
Hljómar þetta kunnuglega? Ef svo er þá ertu í slæmum málum og væntanlegur heilsubrestur er eitthvað sem þú getur veðjað aleigunni uppá.
Ef að kvíði og streita eru að kremja þig í klessu þá þarftu að læra boðorðin 10 um streitustjórnun og að borða mat sem gefur þér kraft í baráttunni!
Borðaðu þig glaða og berðu á streitunni
Möndlur
Möndlur eru hlaðnar B2 (ríbóflavíni) , E vítamíni, magnesíum og sinki. B vítamín og magnesíum hafa hlutverk í framleiðslu serótóna sem hjálpa til við að jafna skapsveiflur og létta á streitu. Sink hefur einnig streitulosandi áhrif og E vítamín er gott fyrir hjartað. Þú skalt þó borða möndlur í hófi þær eru afar fituríkar og þótt það sé góð fita þá gætir þú viljað passa upp á línurnar.
Fiskur
Flestar tegundir af fiski innihalda öll þessi mikilvægu B vítamín sem berja niður stressið. Þau helstu eru B6 og B12. B12 er í uppáhaldi enda tengist það einna sterkast framleiðslu þungavigtarhamingjuefninu serótónin. Borðaðu holla túnfiskloku í hádeginu og grillaðan lax í kvöldmatinn.
Spergilkál
Spergilkálið er stútfullt af andoxunarefnum, B vítamínum og Fólínsýru. Fólínsýra er sérlega nauðsynlegt konum og er streitulosandi, kvíðastillandi og getur hjálpað til í baráttunni við vægt þunglyndi. Þú heldur kannski að það sé leiðinlegt að elda spergilkál en því fer fjarri. Það er gott gufusoðið með smá ólívuolíu, ristuðum möndlum og dreitil af nýkreistri sítrónu yfir. Það má líka mauka soðið brokkólí og hræra við sýrðan rjóma og parmesan ost og nota sem ídýfu, nota í núðlurétti með kashewhnetum eða búa til pestó úr spergilkáli, furuhnetum, hvítlauk, parmensan og ólívuolíu.
Brún hrísgrjón og heilhveitipasta
Húrra fyrir því að kolvetni eru ekki álitin djöfulleg lengur. Þau hjálpa enda til við að halda serótónín magni líkamans háu og hafa því róandi áhrif. Það er þó betra að halda sig við þau hollu og flóknu því þau einföldu og hvítu gefa þér ef til vill stundarorkuskot en þreyta þig til lengri tíma og bæta á þig aukakílóum sem þú hefur enga þörf fyrir. Fáðu þér heihveitinúðlur með chili, hvítlauk og humar, svo sannarlega fæða fyrir sálina.
Sushimeðferð!
Sjávarþarinn (Nori) í makirúllum inniheldur hátt hlutfall magnesíum, b2 og b5 vítamína (b5 vítamín finnst einnig ríkulega í drottningarhunangi sem er oft notað til að húrra upp ónæmiskerfi og varnir gegn sjúkdómum). Já en sumsé hefur þú haldgóða afsökun fyrir því að fá þér sushi með vinkonunum. Er ekki hægt að fá þetta uppáskrifað hjá heimilislækninum? Sushi-meðferð einu sinni í viku. Það er nauðsynlegt!
Rauðbeðusafi
Rauðbeður eru himnafæða og við hyllum þær. Þær eru svo kröftugar og hreinsandi að engu lagi er líkt. Safi úr rauðbeðum lækkar merkjanlega blóðþrýsting og inniheldur járn,fólinsýru, kalk og virka litarefnið betacyanin sem er talið varna krabbameini. Hún er einnig álitin vera góð til að hreinsa lifur og koma skikk á slæmar hægðir. Rauðbeðusafi er óttalega dýr. 750 ml flaska frá Biotta kostar tæpar 900 krónur. Við teljum það þess virði að kaupa slíka flösku einu sinni í mánuði og drekka tvö glös á hverjum degi eina vikuna. Þá má oft fá ferskar rauðbeður og þær er fínt að elda og bera fram með salati.
Kotasæla og melóna
Hunangsmelónur má finna í stórmörkuðum núna. Þær eru frábær uppspretta c-vítamína sem eiga sinn þátt í að lemja á streitupúkanum. Streita étur c-vítamín upp til agna og skilur líkamann eftir í skorti svo það er mikilvægt að bæta á birgðirnar. Kotasælan er síðan góð uppspretta b2 og b12 vítamína og við erum hrifnar af því að blanda þessu saman í svolítið streitubanasnarl.
Steikur!
Jú þú mátt fá þér góða steik og ekki er verra að grilla hana nú þegar sól rís hærra. Í kjöti færðu járn, b-bítamín og sink. Ókostirnir eru þeir að í kjöti finnast óhollar mettaðar fitusýrur sem hressa ekki upp á hjartavöðvann en þú getur verið lunkin og fundið þér magrar steikur og notið lífsins.
Vítamínbætt morgunkorn
Þú getur auðvitað verið topp-gella og eldað þér hafragraut og borðað fullkomlega samsettan mat restina af deginum. Þú getur líka einfaldlega keypt þér Cheerios sem er vítamín -og járnbætt og byrjað daginn með góðu starti.
Bláber
Þessar bláu elskur eru prýði Íslands. Það ætti að vera þegnskylda að týna ber á haustin og fylla frysta. Sneisafull af andoxunarefnum og c-vítamínum og reyndar góðum trefjum líka. Settu þau í salöt, fylltu lambasteikina með þeim, borðaðu þau með jógúrt eða settu þau í holl morgunverðarmuffins.
Jæja og nú kemur smáa letrið. Komdu þér fyrir í fósturstellingunni og lestu vel- Því þessi haldreipi stress-sjúklingsins eru á bann eða í hófi listanum : Kemur kannski ekki á óvart en:…Kaffi, te, steiktur matur, sælgæti, salt, fituríkur matur, áfengi og reykingar er eitthvað sem má alveg skilja eftir í fortíðinni eða neyta í hófi.
Þegar þú hefur vanist því að borða vel þá finnur þú fyrir betra úthaldi. Það er þó alls ekki nóg að borða rétt og vel. Þú þarft að fylgja boðorðunum 10 ef þú ert ofurkona ofurseld stressi.
Boðorðin 10
1. Þú skalt ekki reyna að vera fullkomin
Það er ekki hægt! Leyfðu ljótunni að koma án þess að fara í sorg.
2. Þú skalt ekki reyna að gera allt sjálf
Klæddu þig úr ofurgallanum og slappaðu af.
3. Þú skalt stundum skilja verk eftir ókláruð
Af því þú ert af holdi og blóði.
4. Þú skalt ekki dreifa kröftum þínum of mikið
Haltu fókus og bútaðu verkefnin niður í smærri einingar.
5. Þú skalt læra að segja nei
Og því miður þá kemst ég ekki” og “ég hef ekki tíma til þess”.
6. Þú skalt fyrirgefa
Og hætta að reiðast yfir smámunum. Lifðu sátt í núinu.
7. Þú skalt slaka á
Þú skalt draga þig úr hringiðunni og gera akkúrat ekkert af og til.
8. Þú skalt ekki hafa samviskubit
Þú skalt ekki finna til sektar yfir því að gera ekkert eða því að segja nei
9. Þú skalt lenda í ævintýrum
Reyna að lenda í óteljandi litlum ævintýrum. Lifðu skemmtilegu lífi!
10. Þú skalt vera besta vinkona þín
Skipuleggðu tímann þannig að þú hafir tíma fyrir sjálfa þig.



April 17th, 2010 → 4:42 pm @ kristjana
0