Bíllinn tekinn í gegn

April 27th, 20109:10 am @ arna

2


Bíllinn tekinn í gegn

Sumar okkar keyra um á gljáfægðum drossíum sem virðast ekki einu sinni safna ryki. Aðrar, jah. Hver kannast við úldin æfingaföt, gamalt bananahýði og klístraðar kvittanir?

Við höfum fengið nokkur góð ráð frá bílakonum:

  • Ekki borða í bílnum
  • Mamma geymir alltaf baby-wipes í hanskahólfinu og strýkur reglulega af mælaborðinu. Bíllinn hennar er ALLTAF fínn.
  • Ég geymi kort af stór-Reykjavíkursvæðinu í plastvasa í hanskahólfinu. Þá villist ég ekki þegar ég er að leita að íþróttamóti í Garðabæ eða álíka á síðustu stundu.
  • Hafðu andlits-blautþurrkur fyrir börn í hanskahólfinu. Þær fást í apótekum og eru með ávaxtalykt. Nauðsynlegt til að þurrka sinnep af litlum puttum.
  • Bílaþrifdagur er einu sinni í viku, alveg eins og á heimilinu. Bílaþrifdagurinn minn er á föstudögum. Þá tæmi ég rusl og fer inn með allt dótið sem hefur safnast yfir vikuna. Ryksuga sæti og gólf og þurrka af rykið (það er ótrúlegt hvað bílar geta safnað ryki) og skola svo bílinn. Það er svo æðislegt að geta farið fín á hreinum bílnum í leikhús eða í helgarbíltúrinn.
  • Ef bíllinn lyktar illa er hér eitt örþrifaráð: Stráðu matarsóda yfir sætin og nuddaðu inn í áklæðið og leyfðu að standa í hálftíma eða lengur. Þegar sódinn hefur legið og sogið í sig illa lyktandi agnir í svolítinn tíma geturðu ryksugað hann upp (og lyktina vonandi um leið).
  • Pabbi kenndi mér að skipta um dekk. Og að geyma alltaf hanska hjá felgulyklinum.
  • Athugaðu hvort ekki sé sjúkrakassi í bílnum, það er nauðsyn!
  • Það er óþolandi að vera klínklaus og þurfa að leggja í miðbænum. Ég kaupi rúllu af 50kr. peningum fyrir 2000 kr. í bankanum og geymi hana í bílnum.
  • Hafðu ruslapoka í bílnum. Og taktu hann með þér og hentu honum í lok dags.