RSS

Leita eftir mánuði »April, 2010«

Sigríður Björk lögreglustjóri →  April 23, 2010 0

Sigríður Björk Guðjónsdóttir er lögreglustjóri á Suðurnesjum og segir okkur af bakgrunni sínum og menntun og afhverju það er mikilvægt að fjölga konum í lögreglustétt.

Skilaboð frá sálarsystrum →  April 23, 2010 0

Sálartónlistina má rekja til gospeltónlistar í Bandaríkjunum. Hjarta hennar er í Chicago og Detroit. Hún miðlar lífsreynslu og tilfinningum svartra og var einna vinsælust á sjötta áratugnum. Við þekkjum allar dívurnar, Dionne Warwick, Roberta Flack, Arethu Franklin og Shirley Bassey.  En hér teljum við upp nokkrar magnaðar sálarsystur sem eru ekki eins þekktar en gáfu [...]

Förðun fyrir sumarnætur…. →  April 23, 2010 0

Maskarataumar og eldrautt nef, tárvot augu og varaliturinn út um allt? Hjá öllu þessu má komast. Karin Kristjana frá MAC sýnir okkur því helstu brellurnar sem felast meðal annars í fallegri áferð, raka og endingargóðum varalit.

Topp 10 leiðir fyrir óheillakrákur að snúa lukkunni →  April 21, 2010 1

Ólukkan virðist elta sumar konur. Þær safna stöðumælasektum, brjóta háa hæla og gleyma að renna upp buxnaklaufinni. Gyrða kjólinn ofan í sokkabuxurnar og lenda ávallt í staðbundnum hvirfilbyl þegar þær eru á leiðinni út á lífið með vandlega greitt hárið. Þjónustufulltrúar góðærisbankanna hatar þær og tannlæknirinn nennir ekki að deyfa þær. Kærastar þessara óheillakráka eiga það sameiginlegt að vera hrikalegir gallagripir. Allt frá því að vera lausgyrtir í að vera ruddalegir og leiðinlegir. Hvað er málið? Hugsa þær. En vitið til óheillakrákur geta snúið á ólukkuna. Hér eru nokkrar góðar leiðir til þess: