Vertu þú sjálf
Vertu góður vinur
Vertu í bandi
Vertu í klúbbi
Sæktu viðburði
Ertu snillingur í mannlegum samskiptum og með tengslanetið og tilheyrandi í vasanum? Eða ert þú kannski meira inn á við og átt erfitt með að skilja hvernig fara á að þessu?
Tengslanet kvenna er mikilvægt og tengslanet kvenna innan hvers fags skiptir enn meira máli. Við konur þurfum að losa okkur við alla feimni við að tengjast sterkari böndum. Í gegnum aldirnar höfum við lært af hvor annarri, kynslóð fram af kynslóð, það væri asnalegt að hætta því núna.
Hugtakið og umræðan um tengslanet flækist fyrir mörgum og sumum virðist þetta vera eitthvað ógurlegt mál, eins og hluti af mastersgráðu sem þau nýútskrifuðu eru með á hreinu. Og sumir eru sko alveg með það á hreinu og það virðist því fólki eðlislægt að búa til vinanet og tengslanet. Þetta er fólkið í vinnunni sem fer um allt, tekur í hendur fólks og kynnir sig hverjum sem það mætir. Á meðan stendur þú til hliðar og horfir á. Kannski feimin eða líður eins og þú sért ekki nógu “mikilvæg”.
Við erum ekki öll náttúrulega góð í því að mynda félagsleg tengsl. Kannski ertu meira inn á við en út á við. Þú gætir haft ákveðnar skoðanir á svona tengslanetshegðun (kannski finnst þér hún gervileg eða að fólk sé að reyna að nota þig). Þú ættir samt að geta eignast vini og kynnst fleira fólki án þess að vera eins og smjaðrandi sölumaður.
Nokkur mikilvæg atriði sem vert er að hafa í huga:
Vertu þú sjálfÞað er mikilvægasta atriðið. Okkur líður yfirleitt best þegar við erum ekki of formleg. Ekki búa þér til samskiptatækni fyrir tengslamyndun sem er þér ekki náttúruleg. Fólkið sem þú vilt hafa í kringum þig er fólk sem kann að meta þig eins og þú ert.
Vertu góður vinurAð byggja upp tengslanet þarf ekki að vera kuldalegt viðskiptaatferli. Margt er sammerkt góðum tengslamyndunum og góðri vináttu. Þú myndir spyrja viðskiptavininn hvernig hann hefur það og láta það skipta þig máli hvernig honum líður og gengur. Ef vinátta virðist ekki þróast eðlilega í tengslamyndun ætti að láta þann aðila vera og halda áfram.
Vertu í bandiStór hluti þess að vinna í tenglsanetinu sínu snýst einfaldlega um að láta fólk vita af því hvað þú ert að gera. Þetta gæti þýtt að þú sendir út stöku “fréttabréf” til gamalla vina. Þetta þýðir líka að þú sendir jólakort til þeirra sem eru innan þíns tengslanets. Ekki reyna að víkka út tengslanetið ef þú hefur ekki tíma til að sinna þeim sem eru nú þegar í því.
Vertu í klúbbi.Hittu fólk sem deilir með þér áhuga á því sem þú starfar við. Klúbbar eða samkundur snúast ekki um að vera snobbaður og fínn með sig innan síns fags. Það er vettvangur þar sem þú hittir fólk sem deilir ástríðum þínum og lærir eitthvað nýtt og kynnist nýju fólki sem kann að meta það sama og þú.
Sæktu viðburðiEf draumurinn er til dæmis að verða kvikmyndagerðarkona og þig langar að komast í bransann sækirðu allar sýningar og kynningar sem eru í boði. Þú óskar eftir því að komast að sem aðstoðarmanneskja til að kynnast starfinu. Þú myndar tengsl á öllum mögulegum stöðum sem þér dettur í hug að tengist faginu.
Vertu með, eignastu vini og kræktu þeim í netið þitt.



March 26th, 2010 → 10:50 am @ kristjana
0