Mátuleg hreyfing sem lífsstíll

March 26th, 201011:28 am @ kristjana

0


Mátuleg hreyfing sem lífsstíll

Ert þú ein af þeim sem langar að komast í gott form en springur á limminu?

Það er okkur Íslendingum svo eðlislægt að taka allt með trompi, að ef við ákveðum að fara af stað í líkamsrækt þá dugar ekkert minna en allur pakkinn, mæta að minnsta kosti 4x í viku og vera að minnsta kosti klukkutíma í einu.  Ef það reynist of mikið, þá er hætt jafn snögglega og byrjað var.  Kannski er þessi stóri pakki of stór í sumum tilfellum og ef við ráðumst í það sem er of stórt þá er það dæmt til að mistakast.

Markmið líkamsræktar getur verið margþætt.  Sumir stunda líkamsrækt til að keppa að ákveðnu marki, ætla sér að taka þátt í keppnum og æfa því stíft.  Sumir stunda líkamsrækt sem lið í því að grenna sig.  Sumir stunda líkamsrækt til þess að styrkja líkamann almennt og bæta almenna líðan.  Áherslurnar geta verið mismunandi og eitt markmiðið þarf ekki að útiloka annað.

Oft er líkamsrækt of mikið tengd því að komast í hörku form eða missa ákveðinn fjölda kílóa.  Að sjálfsögðu er hægt að nota líkamsrækt í þessu skyni en margir gleyma aðal atriðinu með líkamsrækt sem er það að mátuleg líkamsrækt og hreyfing eykur almenna vellíðan bæði andlega og líkamlega.

Þeir sem vinna kyrrstöðuvinnu og hreyfa sig lítið eða einhæft yfir daginn, þurfa nauðsynlega að fá fjölbreytta hreyfingu einhvern tíma dagsins til þess að koma í veg fyrir fylgikvilla hreyfingarleysis eins og vöðvabólgu, stirðleika, mæði við minnstu áreynslu, stoðkerfis-, hjarta- og æðasjúkdóma, þunglyndi og svo mætti lengi telja.

Lítil hreyfing er betri en engin hreyfing

Hreyfðu þig á hverjum degi

Tegund hreyfingar skiptir ekki öllu máli.  Aðalatriðið er að komast af stað, hafa markmiðið mátulegt og gera það sem þér finnst skemmtilegt.  Lítil hreyfing er betri en engin hreyfing.  Það er betra að fara út í göngutúr í 10 mínútur heldur en að sitja heima og gera ekki neitt.  Það er betra að taka stigann einu sinni og sleppa lyftunni.  Að standa upp frá skrifborðinu af og til og teygja sig er betra en að sitja allan daginn.  Til þess að þjálfa hjarta- og æðakerfið þarf að ná púlsinum upp.  Það er hægt með hvaða röskri hreyfingu sem er.Veldu þér þá hreyfingu sem þér finnst skemmtileg og skoðaðu hvar hægt er að skjóta henni inn í daglega lífið.  Hreyfingin þarf ekki alltaf að vera sú sama.  Það er hægt að taka 20 mínútna gönguferð einn daginn, sund annan dag og spila badminton þann þriðja.  Eða eitthvað allt annað; fara út að hjóla með börnunum einn daginn, skjótast í jóga í hádeginu nokkrum dögum síðar og ganga með saumaklúbbnum á kaffihús í lok vikunnar. Aðalatriðið er að setja hreyfinguna inn sem jafn sjálfsagðan hluta af daglega lífinu eins og að bursta tennurnar.  Ekki fara af stað með látum og ætla sér allt of mikið.  Settu þér raunhæf markmið og auktu lífsgæði þín með mátulegri hreyfingu.

Ragnheiður Ýr Grétarsdóttir - www.anda.is