María Birta Bjarnadóttir er 22 ára verslunareigandi, fyrirsæta og áhugaleikkona. Hún rekur þrjár verslanir, skóverslunina Maníu, fataverslunina Vintage sem eru báðar á Laugaveginum og netverslunina Elítu. María býr í miðbænum með kærustunni sinni, Natalie G. Gunnarsdóttur og við lítum inn til hennar og fáum að kíkja aðeins í fataskápinn .
María hefur ferðast mikið frá unga aldri, bæði með móður sinni sem er flugfreyja og síðar sjálf vegna fyrirsætustarfa. Á ferðalögunum hefur hún sankað að sér ýmsum gersemum. ”Ég hef komið oft til New York og þekki ýmis hverfi þar vel. New York er mikil vintage borg og verslanir í Brooklyn eru uppfullar af gersemum. Það var í einni slíkri vintage verslun, mig minnir að hún heiti Alison Underground, sem ég féll fyrir flíkunum. Mamma hafði látið mig máta brúðarkjól og grét af gleði af því að sjá mig í honum. Ég var sextán ára og hún keypti hann á nokkra dollara og við ferðuðumst með þennan fyrirferðamikla kjól. Ég læt kannski verða af því að gifta mig í honum, hver veit? En það var eitthvað við þessa verslun sem kveikti í mér og síðan þá hef ég sankað að mér gersemum sem varð ef til vill til þess að í dag rek ég þrjár verslanir.
Hvernig varstu klædd sem barn? Ég var alltaf mjög stelpuleg, nær alltaf í blómakjólum með sítt liðað hár. Sakleysið uppmálað! Það er eiginlega stutt síðan ég hætti að klæðast þeim.
Hver er uppáhalds flíkin þín? Uppáhaldsflíkin mín er svört og þægileg peysa eftir Marios sem keypt var í Liborius. Natalie á hana og ég stel henni eins oft og ég kemst upp með.
Áttu mikið af fötum? Jú ég á heil ósköp. Ég flutti inn með lítinn hluta fataskápsins til Natalie, restin er ansi fyrirferðamikil og ég geymi hana á lagernum í Vintage. Ég myndi fylla íbúðina af púffermakjólum og allskyns varningi sem ég klæðist sjaldan en fæ ekki af mér að fleygja. Þar sem ég bjó síðast átti var ég í miklum vanda hvar ég átti að geyma öll skópörin mín. Ég leysti málið með húmor og raðaði þeim ofan á sófann.
Kaupir þú þér mikið af fötum? Ég fæ mér einhverja flík í hverjum mánuði en leyfi mér ekki að sleppa mér lausri í fatakaupum.
Áttu þér uppáhalds liti, mynstur eða efni? Ég elska vínrauðan lit og leður og sæki mjög í hlébarðamynstur.
Hvað finnst þér vanta í snyrtibudduna og/eða fataskápinn? Mér dettur ekkert sérstakt í hug nema þá helst hvað mig langar í nýtt ilmvatn, Muse de Musk frá L´Artisian
Hvað einkennir klæðaburð þinn? “Ég er stundum sögð hafa mál Marylin Monroe þótt hún hafi verið öllu lágvaxnari. Það hljómar nú afskaplega vel en
þa ð getur stundum verið erfitt að finna réttu sniðin þar sem kjólar eru oft víðir í mittið. Ég vel mér því oft kjóla úr teygjuefnum þar sem vöxturinn fær að njóta sín eða nota teygjubelti í mittið. Ég er langoftast í háum hælum og það er eiginlega sjaldan að ég klæðist flatbotna skóm. Hversdags er ég oftast í hettupeysu eða kósý peysu utanyfir klæðnaðinn.Ég er langoftast í svörtu. Okkur Natalie er stundum strítt á þessu þar sem við göngum Laugaveginn báðar hettuklæddar og svartklæddar.
Hvaða merki fatahönnuða heldur þú mest uppá? Balmain, MiuMiu og Dolce og Gabbana enda hanna þeir föt sem passa mér ágætlega.
Áttu þér einhverja stílfyrirmynd? Mér finnst Angelina Jolie vera elegant og frjáls í anda. Ég dáist að henni fyrir staðfestuna og því hvernig hún tekur afstöðu í lífinu og fylgir henni. Hún gerir það sem hana langar, er með körlum jafnt sem konum, fær sér húðflúr og lifir lífinu lifandi. Þá finnst mér Agyness Deyn vera mögnuð kona. Hún hefur afgerandi stíl og fólk fylgir henni eins og í leiðslu.
Skemmtilegar staðreyndir um Maríu Birtu:
-Áhugamál hennar tengjast flest mikilli framleiðslu Adrenalíns. Hún er paintball meistari 2006 og hefur gaman af því að fara á brimbretti.
-Hún leikur í íslensku kvikmyndinni Órói í leikstjórn Baldvin Z. Myndin verður frumsýnd 27. ágúst í sumar. Órói er mynd um unglinga sem eru að stíga sín fyrstu skref í heimi hinna fullorðnu. Myndin er byggð á bókum Ingibjargar Reynisdóttur “Strákarnir með strípurnar” og “Rótleysi, rokk og rómantík” sem hafa notið mikilla vinsælda hér á landi. María Birta leikur Júdit og leikur ma í stuttri nektarsenu í myndinni.
-Hún sankar að sér gömlum hlutum og átti um tíma stórt safn gamalla síma sem hún hefur selt frá sér.
-Móðir Maríu Birtu heitir Sigurlaug Halldórsdóttir, kölluð Dillý og er fyrrum fegurðardrottning. Faðir hennar heitir Bjarni og stjúpfaðir hennar er Pálmi Gestsson gamanleikari.
- Hálsbönd í hárið
- Fyrir gull
- Klippingin
- Hálsmen fyrir hárband
- Glitrandi hlébarði
- Kögurkjóll
- Aflitaðar augabrúnir
- Taska …
- Stórt úr!
- Uppáhaldsstólinn
- Vinnustóllinn
- Allir í leðri
- Glingur
- Uppáhaldsflíkin
- Plötusafnið
Texti: Kristjana Guðbrandsdóttir
Myndir: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir






































Rúnar
2 Árs síðan
Það er eiginlega ekki hægt annað en að vera með áhugavert viðtal og flottar myndir þegar María Birta á í hlut!
Guðrún Inga
2 Árs síðan
Flott stelpa María Birta, enda ekki skrítið verandi dóttir mömmu sinnar!
kolla
2 Árs síðan
Já það er alveg satt, hún er ótrúlega glæsileg stelpa.