Litla hamingjumómentið mitt er þegar ég horfi á eftir börnunum mínum ganga í skólann. Með nesti í tösku, vel dúðuð og brosandi. Ég næ aldrei að halda aftur af mér og kalla alltaf einu sinni enn “bless elskurnar, eigið góðan dag!”
Það er frábært að setjast á kaffihús með góðri vinkonu, panta góðan mat og drekka tvö vínglös með. Kvöldstund sem klikkar aldrei og veitir manni næringu fyrir marga næstu daga.
Ég fæ alltaf ánægjustraum um mig þegar ég er á leiðinni út með manninum mínum, er búin að hafa mig til í dágóða stund en sest að lokum við borðstofuborðið og naglalakka mig. Lítið móment sem inniheldur dásamlega ró, kitlandi tilhlökkun og skemmtilega gyðjutilfinningu.
Erla Björg Gunnarsdóttir, verkefnastjóri hjá Rauða Krossinum



arna
1 Ár síðan
Ah lakkanakk getur verið þvílíkt hugguleg stund
Góður listi!