Til er kenning um hvað hefur mest áhrif á það hvort við erum hamingjusöm eða óhamingjusöm. Samkvæmt henni gera sér allir væntingar um eigið líf. Það er mynd af þeirri manneskju sem við viljum vera og okkur finnst við ættum að geta verið. Við verðum óhamingjusöm þegar líf okkar og sjálfsmynd stenst ekki þessar væntingar. Bilið á milli er of stórt og við reynum í örvæntingu að fylla upp í tómið með ýmsum aðferðum. Ofát, ofdrykkja, deyfing með lyfjum eða spilum er birtingarmynd þessarar eilífu leitar að fyllingu í tómið. Það er þó þýðingalítið vegna þess að þetta tóm verður alltaf jafn stórt á meðan hvorki væntingar né lífsmynstur breytist.
Hver vill ekki vera fullkominn?
Á síðustu áratugum hefur offita orðið algengari, þunglyndis- og kvíðasjúklingum fjölgað gífurlega og drykkjualdur færst neðar. Á þessum sama tíma hafa ímyndir og staðalmyndir glansheimsins orðið mun aðgengilegri og í rauninni er óhjákvæmilegt að komast hjá því að bera sig saman við glæsikvendin í blöðunum (síðan hvenær er ekki hægt að lesa fréttir án þess að rekast á Hollywood slúður?) eða í öllum módelraunveruleikaþáttunum í sjónvarpinu. Það er ekki erfitt fyrir áhrifagjarnt ungmenni að álykta að væntingar þess ættu að vera í samræmi við fullkomnustu myndina – hver vill ekki vera fullkominn?
Að vera ófullkominn ætti að vera takmarkið
Hamingjan er eins og falleg og ljúffeng kaka. Uppskriftin segir til um ákveðin hlutföll efna sem á að blanda saman – og efnin og hlutföllin eru einstök fyrir hverja köku.
Hamingjan finnst með því að leita eftir þinni uppskrift og þínum hlutföllum. Viljir þú verða hamingjusöm þarftu að skoða væntingar þínar til sjálfrar þín. Þú þarft að kanna þær á öllum sviðum. Þú þarft að gefa þeim vægi og raða þeim eftir mikilvægi. Hverjar eru þær fyrir þig í námi; starfi, samskiptum, vinskap, áhugamálum, heilsu, sem dóttur, kynveru, móður? Við höfum allar trilljón skyldum að gegna og berum ábyrgð á mörgum sviðum. Ef við ætluðum að sinna öllu af sama krafti myndi veröldin springa í loft upp. Þú ein veist hvað skiptir þig mestu máli og það er mikilvægt að þú takir þér góðan tíma í að hugsa um væntingar þínar til lífsins. Þú þarft nefnilega þar næst að raða því upp í mikilvægisröð hvað skiptir þig mestu máli. Ein kona gæti sett frama ofar vinskap, önnur sett börnin í fyrsta sæti og sig sem kynveru í annað sæti. Það þýðir ekki að sú fyrri sé vinalaus og sú seinni bitur fráskilin frystikista. Þær eru líklegri til þess að vera sáttar og hamingjusamar og þær eru líklegri til þess að geta tekið ákvarðanir án þess að engjast um af samviskubiti yfir öllu sem þær eru að vanrækja.
Þegar lífið stenst samanburð við væntingar
Væntingar þínar til sjálfrar þín ættu að verða meira í takt við raunveruleikann um leið og þú viðurkennir að einhverju verður að fórna. 8 teskeiðar af lyftidufti myndu kolfella kökuna. Um leið og þú ferð að haga þér samkvæmt þínum nýuppfærðu gildum og væntingum finnurðu fyrir hamingjunni læðast inn. Þú nærð að gera þá hluti sem skipta þig mestu máli, og þú ert farin að æfa þig í að láta það ekki á þig fá þó öll restin náist ekki. Það er nefnilega svo frábært að sjá framfarir og árangur á þeim sviðum sem skipta okkur mestu máli. Að vilja gera, og gera svo, veitir mikla ánægju. Og það er ekki hægt nema án truflana frá öllu hinu sem við höfum hvort eð er engan áhuga á.



March 26th, 2010 → 10:53 am @ kristjana
0