Ég er hamingjusöm….
Þegar ég er kappsöm og eiginlega svolítið brjáluð af framtakssemi.
Þegar ég vakna snemma í ofurkonugallanum og næ bæði að gefa börnunum flottan og góðan morgunverð, skemmta mér með þeim og senda þau í skólann í góðu skapi, vel straujuðum fötum og með ævintýralegt spennandi nesti.
Þegar mér tekst að halda góðu lífi í bernskudraumum mínum og trúi því að ég geti enn orðið fornleifafræðingur ala Indiana Jones eða einkaspæjari ala Nancy Drew.
Þegar ég drekk ískalda kók i gleri í sumarkjól í í heitri en svalri íslenskri sól og sný við fallegum steikum á grillinu.
Þegar mér tekst að sigrast á klaufaskap og athyglisbresti og búa til eitthvað stórfenglegt.
Þegar ég hef lært eitthvað nýtt og það ljúkast upp fyrir mér nýir heimar, til dæmis að prjóna, lesa um nýjar vísindakenningar og búa til fallegt og girnilegt sushi. Áhugasamir lifa lengur!
Þegar ég fer í háttinn í nýstraujuðum, brakandi ferskum rúmfötum sátt eftir erfiðan en góðan dag- nýbúin í heitu, ilmandi baði. Ekki er verra ef minn heittelskaði er til í röfl um ekki neitt fyrir svefninn.
Þegar ég baka fallegt brauð og borða það ylvolgt með góðri vinkonu yfir ilmandi tebolla og innihaldsríkum samræðum.
32 ára, tveggja barna móðir í Vesturbænum.



Hrefna
1 Ár síðan
þekkti mig í sumu af þessu, en flestir þessara drauma kalla á mikil heimilisverk, áður en notið er stundarinnar! heimilisverk eru ágæt, en í hófi. Svo ég varð soldið þreytt að lesa þetta… markmiðadrifin hamingja s.s. baka brauð, stauja, útbúa fallegt nesti ….