Ynja vikunnar: Kristína Svíadrottning

March 15th, 20102:45 pm @ kristjana

0


Ynja vikunnar: Kristína Svíadrottning

Kristína er líklega einn vanmetnasti þjóðhöfðingi allra tíma. Henni tókst að binda enda á 30 ára stríðið á skömmum tíma. Hún nam stjörnufræði og efnafræði, var fim skylmingarkona og talaði fimm tungumál reiprennandi frá unga aldri. Hún varð ástfangin af konum jafnt sem karlmönnum og drap frægan franskan heimspeking fyrir slysni…og þetta er bara byrjunin.

Kristína er best þekkt fyrir:

Jah! Því miður þekkja hana helst sögufróðir. Hún er vanmetnasti þjóðhöfðingi okkar Skandínava. Það er þá helst að við þekkjum hana úr mynd sem Greta Garbo lék aðalhlutverkið í: “Queen Christina” (1933) eða úr réttindabaráttu samkynhneigðra þar sem hún á sitt hásæti enn.

Og minnst þekkt fyrir:

Að eiga nokkra sök í dauða Descartes þótt dauði hans hafi verið af náttúrulegum orsökum

Og sagði:

“Það er nauðsynlegt að reyna að fara framúr sjálfri sér öllum stundum alla ævi.”
“Lífið er tilgangslaust og snautt eigir þú ekki vini og óvini. “
“Heimska er hættulegri en illska.”

Hún er ynja vikunnar af því að:

Hún hafði magnaða orku. Hún var hrein og klár ofurkona og fór ákveðin óhefðbundnar leiðir. Hún var kappsöm og forvitin, gagnrýnin en um leið ástríðufull. Hún  var umburðarlynd og hafði einstaka hæfileika til þess að læra og nýta sér þekkingu sína. Hún sagði reyndar í riti að konur ættu ekki að stjórna þrátt fyrir að hafa ríkt  sjálf yfir Svíþjóð með góðum árangri en við fyrirgefum henni það enda átti hún morðótt skass fyrir móður!

Kynnist Kristínu betur:

Christina á árum sínum í Frakklandi líklega rétt undir þrítugu

Frækin kappynja á yngri árum

Þegar kafloðin lítil dóttir fæddist Gustav Adolf Svíakonungi árið 1626 lýsti hann því yfir að hér væri kominn erfingi. Hann gaf skipanir um að Kristína skyldi alinn upp eins og prins og hún sór síðar óð sinn sem konungur en ekki drottning og var þess vegna kölluð stúlkukonungurinn. Christina ríkti yfir Svíþjóð frá 1632 til 1654.

5 ára: Faðir Kristínu deyr og hún er krýnd konungur (ekki drottning-hún tekur í alvöru eið sem konungur…) undir leiðsögu kanslara og er eftir það kölluð “Stúlkukonungurinn”. Sjálf er litla stúlkan óhuggandi í sorg en móður hennar verður hugsjúk og þær mæðgur aðskildar. Kristína fær uppeldi eins og eru forréttindi hástéttardrengja í þá daga. Hún lærir að sitja hest og skylmast og fær fyrstu lexíurnar í trúarbragðafræði um lútherska trú. Strax þá um níu ára aldur hefur hún efasemdir um trú og spyr gagnrýnna spurninga.

13 ára: Þegar Kristína hafði náð þrettán ára aldri hafði móðir hennar lagt nokkrum sinnum á ráðin um að myrða hana en án árangurs. Hún mætti á fyrstu landstjórnarfundina og tók virkan þátt í ákvarðanatöku. Hún vakti athygli fyrir skelegga framgöngu og óhefðbundna framkomu en hún valdi sér karlskótau til að ganga á því henni fannst skótau fyrir konur virkilega óþægilegt.

15 ára: Á táningsárum sínum náði Kristína tökum á fimm tungumálum og talaði þau öll reiprennandi. Hún þótti hafa einstaka hæfileika til tungumálanáms. Hún lærði stjörnuvísindi og heimspeki en hafði enn mestan og djúpstæðan áhuga á trúarbragðafræðum. Þá hafði hún náð mikilli færni í skylmingum og stundaði veiðar af miklum þrótti.

18 ára: 17 ára varð Kristína skotin í Charles Gustav og þegar hún tók við krúnunni með fullu forræði við 18 ára aldur gaf hún til kynna að honum myndi hún giftast. Hún hafði þó ekkert slíkt í huga og þá var hún ástfangin af ungri konu í hirð hennar, Belle.

19 ára: Kristína aðstoðar við það að koma fyrsta dagblaði Svía á laggirnar og byrjar að ræða hugmyndir og heimspeki Descartes við franska sendiherrann af miklum áhuga.

21 ára: Trúarkrísa Kristínar leiddi til þess að hún lagði á sig nám í trúarbragðafræði næstu árin. Hún kynnti sér trúarbrögð heimsins og  22 ára batt hún enda á Þrjátíu ára stríðið sem kanslarinn hafði viljað halda til streitu.

Christina á efri árum

Auðmjúk og trúuð Christina síðari hluta æviskeiðs síns

24 ára: Bauð Kristína Descartes til Svíþjóðar um hávetur. Hún gat aðeins hitt hann árla morguns þegar kaldast var og eftir nokkra mánuði dó Descartes úr vosbúð og lungnabólgu. Á þessum    tíma þurfti hún að halda trú sinni leyndri því í Svíþjóð hafði Lúthersk trú sigrað allar koppagrundir og jesúítaprestar þurftu að dulbúast til að fara á fund drottningar.

28 ára: Kristína gat ekki lifað tvöföldu lífi og vildi elta trúarsannfæringu sína. Hún lét krúnuna til frænda síns Charles Gustav (jú þess hins sama og hún hafði sagst ætlað giftast). Hún fór frá Svíþjóð klædd karlmannsfötum og ferðaðist gegnum Evrópu til Rómar. Í Róm fékk hún sína þráðu blessun frá Alexander 7. páfa og tók sér tvö aukanöfn honum til heiðurs: Alexandra María í höfuðið á páfa og Alexander mikla sem hún dáði mjög.

63 ára: Trú hennar styrktist með árunum og hún dó 63 ára gömul. Hún er ein af fjórum konum sem eru lagðar til hvílu í Sankti Péturs kirkju þar sem páfarnir hvíla.