Anna Svava Knútsdóttir leikkona spyr Helgu Brögu leikkonu 7 spurninga og hefur þar með leikinn á nýjum lið Ynjunetsins þar sem konur spyrja aðrar konur að hverju því sem þær lystir!
Anna Svava spyr:
1. Hvað lærðir þú af fyrstu ástarsorginni?
2. Hefur þú pissað í þig og afhverju? (ekki tekið með þegar þú varst ungabarn)
3. Hvenær finnst þér þú sætust?
4. Hvaða ókost hefur þú frá móður þinni?
5. Ef þú þyrftir að velja mann til að sofa hjá, væri hann 10 árum yngri eða eldri? (verður að vera annað hvort og afhverju?)
6. Segðu okkur frá einu andartaki sem var fullkomið.
7. Hver værir þú til í að vera ef mættir ráða?
Helga Braga svarar:
1. Að ég væri alltof ung til að vera að pæla í ástinni!
2. Ég hef misst örlítið þvag…. úr hlátri.
3. Þegar ég er hamingjusöm
4. Hræðsluköstin.
5. Nei, sko aldur er bara tala! Þetta fer algjörlega eftir manninum!
6. Á hafsbotni á Maui Hawaii; Flottasta ALVÖRU fiskabúr í heiminum, algjört “bliss”!
7. Það er nú bara hún littla ég … “ef mig skyldi kalla” :0) Maður verður víst að læra sína lexíu sjálfur!
Nú er komið að Helgu Braga að velja konu til að spyrja 7 spurninga í næstu viku…



arna
2 Árs síðan
En skemmtilegt